Ágúst og Lýður sigruðu í baráttunni um Bakkavör

Bakka­var­ar­bræður og með­fjár­festar þeirra hafa náð fullum yfir­ráðum yfir Bakkavör á ný. Á meðal þeirra sem seldu þeim hluti sína eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Engin ein sam­stæða kost­aði líf­eyr­is­sjóð­ina meira en sú sem bræð­urnir stýrðu fyrir hrun.

Bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir eru orðnir, ásamt með­fjár­festum, eig­endur að nán­ast öllu hlutafé í Bakkavör Group að nýju. Á mánu­dag var til­kynnt að þeir hafi, ásamt með­fjár­festum sínum, keypt hlut íslenskra líf­eyr­is­sjóða og Arion banka í félag­inu. Þeir eiga nú 89 pró­sent í félag­inu og munu gera til­boð í þau ell­efu pró­sent sem upp á vantar. 

Alls keypti félag í eigu bræðr­anna og sjóða í stýr­ingu hjá banda­ríska fyr­ir­tæk­inu Baupost Group L.L.C. 51 pró­sent hlut af íslenskum aðilum í þess­ari lotu á sam­tals 163 millj­ónir punda, um 30,3 millj­arða króna. Stærstu selj­end­urnir eru Arion banki, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Gildi líf­eyr­is­sjóður og Klakki, sem áður hét Exista og var þá stýrt af Lýð og Ágústi. Ljóst er að þeir aðilar sem seldu bræðr­unum hafa ávaxtað fé sitt umtals­vert á und­an­förnum árum. En þeir töp­uðu líka gríð­ar­legum fjár­hæðum á við­skiptum sínum við bræð­urna fyrir hrun. Upphæðum sem láta þann ávinn­ing sem þeir hafa nú haft af því að bíða með sölu á hlut sínum í Bakkavör í nokkur ár líta út eins og smá­pen­inga.

Með kaup­unum lýkur ára­langri bar­áttu um yfir­ráð yfir Bakkavör Group, fyr­ir­tæki sem Ágúst og Lýður stofn­uðu upp­haf­lega á Sel­tjarn­ar­nesi á níunda ára­tug síð­ustu aldar, og er nú risa­vaxið alþjóð­legt mat­væla­fyr­ir­tæki. Og það má vel færa rök fyrir því að bræð­urnir standi uppi sem algjörir sig­ur­veg­arar í þeirri bar­áttu.

Reyndu að koma Bakkavör undan daginn eftir hrun

Bræð­urnir Ágúst og Lýður Guð­munds­synir voru þunga­vigt­ar­leik­menn í íslensku við­skipta­lífi á bólu­ár­unum fyrir hrun. Þeir höfðu árum saman byggt upp mat­væla­fyr­ir­tækið Bakkavör auk þess sem bræð­urnir höfðu breitt vel úr sér; voru stærstu ein­stöku eig­endur Kaup­þings (þeir voru reyndar einnig á meðal stærstu ein­stöku lán­þega Kaup­þings), keyptu Símann af rík­inu í stærstu einka­væð­ingu Íslands­sög­unnar, áttu trygg­inga­fé­lagið VÍS, fjár­mögn­un­ar­fyr­ir­tækið Lýsingu og meira að segja sinn eigin fjöl­miðil, Við­skipta­blaðið, sem þá var far­inn að koma út fjórum sinnum í viku og var með tugi starfs­manna inn­an­borðs, þrátt fyrir að engar for­sendur væru fyrir slíkum umsvifum í rekstr­inum.

Hér verður ekki rakin öll saga Existu, heldur sjónum beint að því hvernig haldið var á Bakkavör eftir hrun. Exista átti nefni­lega 40 pró­sent hlut í mat­væla­fyr­ir­tæk­inu Bakkavör, sem árið 2008 var orðið alþjóð­legt stór­fyr­ir­tæki skráð á markað í Bret­landi. Afgang­ur­inn var í eigu mörg þús­und ann­arra hlut­hafa.

Daginn eftir fall Kaup­þings, snemma í októ­ber 2008, var 40 pró­sent hlutur Existu í Bakkavör færður til nýs félags í eigu Ágústar og Lýðs, ELL 182 ehf. Félagið greiddi 8,4 millj­arða króna fyrir hlut­inn. Við­skiptin voru fjár­mögnuð með selj­enda­láni frá Existu, frá því var ekki greint opin­ber­lega þegar þau áttu sér stað. Exista var almenn­ings­fé­lag þegar þetta var ákveðið. Hinn almenni hlut­hafi Existu hafði því, án þess að vera spurður að því, lánað bræðr­unum millj­arða króna til að kaupa Bakkavör út úr Existu. Ágúst og Lýður, ásamt sam­starfs­mönnum sínum, héldu um alla þræði í Existu á þessum tíma.

Þegar upp komst um söl­una á hlutnum í Bakkavör og að hún hefði verið fjár­mögnuð af Existu lét Ágúst meðal ann­ars hafa eftir sér í fréttum Stöðvar 2 að sú gagn­rýni sem hefði komið fram á kaupin væri ein­vörð­ungu til komin vegna van­þekk­ingar á mál­inu. „Þessi aðgerð er ein­göngu til þess fallin að eignir Bakka­varar út um allan heim hald­ist í höndum Íslend­inga og kröfu­hafar hafi aðgang að þeim“. Þegar fram liðu stundir varð þó ljóst að kröfu­hafar upp­lifðu málið ekki þannig að Bakka­var­ar­bræður hefðu verið að gera þeim neinn greiða og salan var á end­anum ógilt. Sér­stakur sak­sókn­ari var á sama máli og rann­sak­aði söl­una. Það mál hefur hins vegar síðan verið fellt niður og ekki þótti til­efni til að ákæra í því.

Lífeyrissjóðir keyptu köttinn í sekknum

Staða Bakka­varar á þessum tíma var þannig að félagið var að nið­ur­lotum komið og þurfti á fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu að halda. Hinn mikli vöxtur, sem fólst aðal­lega í því að kaupa upp önnur fyr­ir­tæki í mat­væla­iðn­aði, oft á of háu verði, hafði skilið Bakkavör eftir afar skuld­sett og erfitt var að sjá hvernig félagið ætl­aði sér að standa við skuld­bind­ingar sínar.

Það flækti þó málið enn frekar að sumir lána­samn­ing­arnir við erlenda banka voru þess eðlis að þeir voru bundnir við að Lýður og Ágúst myndu stjórna Bakkavör. Það þýddi að ef þeir misstu eign­ar­hlut sinn þá þyrftu þeir samt að stýra sam­steyp­unni áfram. Auk þess virð­ast bræð­urnir alltaf hafa haft mikið traust hjá þeim erlendu bönkum sem lánað hafa þeim fé. Full­trúar þeirra sögðu beint út við íslenska kröfu­hafa að þeir treystu engum á Íslandi nema Lýð og Ágústi.

Enn frek­ari flækjur urðu til vegna skulda­bréfa­út­gáfu Bakka­varar Group. Til ein­föld­unar er lík­lega best að útskýra upp­setn­ingu Bakka­varar-sam­stæð­unnar þannig að rekstr­ar­fé­lagið Bakkavör, sem átti eignir út um allan heim, skap­aði tekjur hennar. Rekstr­ar­fé­lagið og allar und­ir­liggj­andi eignir þess voru einnig veð­settar fyrir mörg hund­ruð milljón punda lánum sem Bakkavör hafði tekið, að mestu leyti hjá erlendum stór­bönkum og Kaup­þingi, til að geta stækkað jafn hratt og raun bar vitni.

Fyrir ofan rekstr­ar­fé­lagið í skipu­rit­inu var síðan móð­ur­fé­lagið Bakkavör Group. Það var í raun aðeins eign­ar­halds­fé­lag sem átti hlut í rekstr­ar­fé­lag­inu Bakkavör. Þrátt fyrir að allar und­ir­liggj­andi eignir sam­stæð­unnar væru veð­settar fjár­mála­stofn­unum réðst Bakkavör Group í útgáfu á margar millj­arða króna skulda­bréfa­flokki sem jók á skuldir sam­stæð­unnar.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og aðrir fag­fjár­festar keyptu alla útgáf­una. Þegar allt fór á hlið­ina hjá bræðr­unum, Existu og Bakkavör vökn­uðu þessir skulda­bréfa­kaup­endur upp við að þeir voru svo aft­ar­lega í kröfu­hafaröð­inni í Bakkavör að lík­leg­ast myndu þeir aldrei fá krónu upp í kröfur sínar. Þannig skap­að­ist hvati til að reyna að semja á þann hátt að það myndi skila líf­eyr­is­sjóð­unum og öðrum kröfu­höfum Bakka­varar Group ein­hverju til baka.

Á grunni þess­ara hvata gerði Bakkavör Group nauða­samn­ing í upp­hafi árs 2010. Í honum fólst að kröfu­hafar, að mestu leyti Arion banki og skulda­bréfa­eig­endur á borð við líf­eyr­is­sjóð­ina, tóku yfir félagið en bræðr­unum var gefið tæki­færi til að greiða kröfu­höf­unum til baka fyrir mitt ár 2014. Gengi það eftir myndu bræð­urnir fá 25 pró­senta eign­ar­hlut í Bakkavör.

Bræðurnir fá að eignast fjórðung

Bakkavör Group var stærsta fyr­ir­tæki á Íslandi miðað við veltu árið 2011. Þá nam velta fyr­ir­tæk­is­ins 312 millj­örðum króna og var um 20 millj­örðum króna meiri en hjá Actavis Group, hinum alþjóð­lega ris­anum sem var með höf­uð­stöðvar á Íslandi á þessum tíma. Nú hafa höf­uð­stöðvar beggja fyr­ir­tækj­anna verið færðar úr landi. Til að átta sig á stærð­argráðunni var þriðja stærsta fyr­ir­tæki lands­ins Marel. Velta þess árið 2011 var um 108 millj­arðar króna, eða um þriðj­ungur af því sem Bakkavör Group velti. Það var því aug­ljós­lega eftir miklu að slægj­ast með því að ná yfir­ráðum yfir Bakkavör Group.

Í upp­hafi árs 2012 var orðið aug­ljóst að for­sendur nauða­samn­ing­anna myndu ekki halda. Hrá­vöru­verð hafði hækkað mikið mán­uð­ina á undan og inn­kaup fyr­ir­tækja innan Bakka­var­ar­sam­stæð­unnar þyngst. Á sama tíma gekk erf­ið­lega fyrir Bakkavör að velta þessum hækk­unum út í verð á þeim vörum sem sam­steypan fram­leiðir, en það eru aðal­lega til­búnir máls­verðir sem seldir eru í stórum versl­un­ar­keðjum í Bret­landi á borð við Tesco. Því var ákveðið að breyta kröfum í nýtt hlutafé. Til að fá bræð­urna til að sam­þykkja þá aðgerð, sem ella hefðu getað haldið Bakkavör í her­kví fram á sum­arið 2014, var fall­ist á að leyfa þeim að kaupa fjórð­ungs­hlut í félag­inu.

Á aðal­fundi Bakka­varar Group í maí 2012 voru þessar breyt­ingar og ýmsar aðrar sam­þykktar. Í stuttu málið yrði kröfum kröfu­hafa Bakka­varar Group breytt í hlutafé í breska rekstr­ar­fé­lagi sam­stæð­unnar, íslenska Bakkavör Group yrði slitið og bræð­urnir myndu fá að kaupa fjórð­ungs­hlut í breska félag­inu og hlut­hafa­sam­komu­lag sem tryggði þeim meiri­hluta stjórn­ar­manna í Bakkavör, sem gert hafði verið í aðdrag­anda nauða­samn­inga árið 2010, yrði fellt úr gildi.

Lífeyrissjóður klappa kvalara sínum

Fjórð­ungs­hlut­inn fengu bræð­urnir að kaupa á fjóra millj­arða króna. Innra virði Bakka­varar miðað við eig­in­fjár­stöðu sam­stæð­unnar var um 20 millj­arðar króna og því ljóst að bræð­urnir voru að greiða minna en eina krónu fyrir hverja nafn­virð­is­krónu. Þeir voru sem sagt að fá góðan samn­ing.

Sú und­ir­lægju­semi sem kröfu­haf­arnir sýndu bræðr­unum á þessum aðal­fundi vakti athygli. Mesta athygli vakti lík­leg­ast að líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem voru stórir kröfu­hafar, hafi sam­þykkt þessa nið­ur­stöðu. Bræð­urnir Lýður og Ágúst höfðu nefni­lega kostað þá meira fé en nokkur annar. Í úttekt sem gerð var á starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna í aðdrag­anda banka­hruns­ins og kynnt var í apríl 2012 kom fram að sjóð­irnir hefðu tapað sam­tals 170,9 millj­örðum króna á hluta­bréfum og skulda­bréfum sem útgefin voru af Existu og tengdum aðilum. Hlut­deild þess­ara aðila, sem voru aðal­lega Kaupþing, Exista og Bakkavör, í heild­ar­tapi líf­eyr­is­sjóð­anna vegna slíkra bréfa var 44 pró­sent.

Í úttekt sem gerð var á starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna í aðdrag­anda banka­hruns­ins og kynnt var í apríl 2012 kom fram að sjóð­irnir hefðu tapað sam­tals 170,9 millj­örðum króna á hluta­bréfum og skulda­bréfum sem útgefin voru af Existu og tengdum aðilum.

Við­skipta­blokk Bakka­var­ar­bræðra var því án nokk­urs vafa sú sem olli íslenska líf­eyr­is­kerf­inu mestu tjóni. Auk þess virð­ast margir innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins vera sam­mála um að skulda­bréfa­út­gáfa Bakka­varar Group hafi verið ein sví­virði­leg­asta mis­notkun á trú­girni og oft á tíðum barns­legri ein­feldni sjóð­anna sem átti sér stað fyrir hrun. Bréfin voru enda seld á tóma skel þar sem allar und­ir­liggj­andi eignir Bakka­varar Group voru veð­settar upp í topp hjá öðrum kröfu­höfum. Þá er ótalin sú til­raun þeirra að reyna að halda eignum sínum á kostnað kröfu­hafa.

Áttu mikið fé vegna arðgreiðslna

Í kjöl­far aðal­fund­ar­ins fóru bræð­urnir á fullt í að kaupa hlutafé ann­arra hlut­hafa. Og þeir buð­ust til að greiða þeim í reiðufé. Tilboðið á þeim tíma var um 70 aurar á hverja nafn­virð­is­krónu. Þeir sem að mál­inu komu á sínum tíma full­yrða að féð sem bræð­urnir buðu hafi ekki verið lánsfé frá fjár­mála­stofn­unum. Mikið var því rætt um hvaðan þeir hefðu fengið slíka fjár­muni, enda virt­ust þeir til­búnir með marga millj­arða króna í hand­rað­anum.

Það hefði ekki átt að koma neinum á óvart að Lýður og Ágúst væru með mikið fé á milli hand­anna. Hol­lenska félagið sem þeir áttu, Bakka­bra­edur Holdings B.V., sem hélt á eign­ar­hlutum þeirra í Existu og Bakkavör, hafði greitt þeim miklar arð­greiðslur á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kom fram að það félag hefði verið á meðal þeirra aðila sem þáðu hæstar arð­greiðslur allra félaga í eigu Íslend­inga á þessum tíma. Alls fékk félagið tæpa níu millj­arða króna í arð­greiðslur á árunum 2005 til 2007.

Afar erfitt hefur verið að nálg­ast upp­lýs­ingar um hvernig þeim arð­greiðslum var ráð­stafað. DV greindi frá því vorið 2013 að félagið væri enn starf­andi en skuld­aði um 67 millj­arða króna í lok árs 2011. Eignir þess voru nán­ast engar. Undir öllum eðli­legum kring­um­stæðum væri svona félagi, sem aug­ljós­lega var ein­vörð­ungu til utan um hluta­bréfa­eign í Existu sem nú er verð­laus, slitið. Í frétt DV kom fram að sam­kvæmt hol­lenskum lögum þurfi tveir kröfu­hafar félaga þar í landi að krefj­ast gjald­þrots yfir því. Eini kröfu­hafi Bakka­bra­edur Holding B.V. sem vitað er um er Arion banki. Bankinn hafði reynt að ganga á hol­lenska félagið en ekk­ert gengið vegna þessa ákvæðis lag­anna. Bræð­urnir áttu hol­lenska félagið í gegnum kýp­verskt félag, Bakka­bra­edur Holding Strategic Invest­ments Limited. Mikil banka­leynd hefur ríkt á Kýpur og nán­ast ómögu­legt hefur reynst að verða sér úti um árs­reikn­inga félaga sem eru skráð þar.

Gegnsæið er meira á Íslandi og því var hægt að sjá í gegnum opin­ber gögn sem send voru inn til fyr­ir­tækja­skrár að bræð­urnir virt­ust hafa aðgang að miklu fé. Og þeir komu með það heim til Íslands í unn­vörpum. Til­gang­ur­inn: Að ná yfir­ráðum yfir Bakkavör að nýju.

Seðlabankinn bauð upp á 20 prósent afslátt

Leiðin sem bræð­urnir not­uðu til að koma fénu heim var fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands. Virði evr­anna sem þeir áttu í erlendum félögum hafði þegar auk­ist um 50 pró­sent í krónum talið vegna geng­is­falls íslensku krón­unnar og fjár­fest­ing­ar­leiðin bauð upp á um 20 pró­senta við­bót­ar­virð­is­aukn­ingu. Þeir voru því mættir á bruna­út­sölu.

Tvö félög í eigu bræðr­anna, Korkur Invest og BV Finance, voru nýtt í þennan gjörn­ing. BV Finance kom með 463 millj­ónir króna í júlí 2012 og Korkur gaf síðan út skulda­bréf upp á þrjá millj­arða króna í ágúst sama ár og var með heim­ild til að gefa út að minnsta kosti millj­arð til við­bótar. Til að fá að taka þátt í fjár­fest­ing­ar­leið­inni þarf að koma með sömu upp­hæð inn í landið án afsláttar. Því er ljóst að Lýður og Ágúst fluttu mikið fé inn í íslenskt hag­kerfi árið 2012.

Bræðr­unum varð strax ágengt í þeirri við­leitni sinni að bæta vel við fjórð­ungs­hlut­inn sem þeir fengu til að byrja með. Líf­eyr­is­sjóður Starfs­manna rík­is­ins seldi þeim strax sinn hlut. Haukur Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins, sagði við Frétta­blaðið að til­boðið hefði komið í gegnum ótengdan aðila og að trún­aður ríkti um efni hans fyrst um sinn. Hauki hefði átt að vera ljóst hver væri kaup­and­inn. Lýður og Ágúst voru ekki þeir einu sem söfn­uðu sér hlutum á þessum tíma, en þeir voru langstór­tæk­astir. Þeir settu sig í sam­band við nokkur smærri fjár­mála­fyr­ir­tæki og létu þau leggja inn til­boð fyrir sig og altalað var á mark­aðnum hverjir stæðu að baki þeim.

Tryggðu sér 38 prósent hlut fyrir átta milljarða

Þann 27. sept­em­ber 2012 var síðan hald­inn hlut­hafa­fundur í Bakkavör Group til að slíta félag­inu. Þegar kom að honum áttu bræð­urnir þegar rúm­lega 30 pró­sent í rekstr­ar­fé­lag­inu sem undir því hvíldi, og ber nú nafnið Bakkavör Group. Á meðal þeirra aðila sem höfðu einnig selt þeim eign­ar­hluti var þrotabú Glitnis. Verðið sem þeir voru farnir að greiða fyrir hvern hlut fór þó hægt og bít­andi hækk­andi og var komið yfir eina krónu fyrir hverja nafn­virð­is­krónu.

Í kjöl­far slit­anna mátti ekki lengur stunda við­skipti með „gömlu“ hluta­bréfin í Bakkavör án und­an­þágu Seðla­bank­ans heldur þurftu slík við­skipti að fara fram í Bret­landi og með hluti í breska rekstr­ar­fé­lag­inu Bakkavör. Áður en það gerð­ist bættu Lýður og Ágúst þó dug­lega við sig. Þeir keyptu meðal ann­ars hluti Íslands­sjóða (sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis í eigu Íslands­banka), MP banka og minni líf­eyr­is­sjóða. Verðið sem þeir greiddu fyrir var komið upp í meira en 1,5 krónur á hlut. Alls náðu bræð­urnir að tryggja sér um 38 pró­senta hlut með þessum hætti. Þeir sem þekkja vel til á mark­aðnum voru sam­mála um að með­al­verð í öllum þessum við­skiptum hafi verið um ein króna á hlut. Samkvæmt því hafa bræð­urnir greitt um átta millj­arða króna fyrir 38 pró­senta hlut sinn.

Arion-blokkin stóð saman um tíma

Þegar Bakka­var­ar­bræður hófu gengd­ar­laus upp­kaup á hlutum í Bakkavör mynd­aði hópur íslenskra aðila, fyrrum kröfu­hafa Bakka­varar sem hafði tapað gríð­ar­legum fjár­hæðum á við­skiptum við félagið, blokk á móti bræðr­unum með rúm­lega 50 pró­sent eign­ar­hlut. Á meðal þeirra sem til­heyrðu þeirri blokk eru Arion banki, sem átti um 34 pró­sent, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi líf­eyr­is­sjóður. Auk þess voru Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Sam­ein­aði líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Stafir líf­eyr­is­sjóðir hluti af blokk­inni. For­svars­menn hennar hafa sagt að það sé væg­ast sagt ólík­legt að nokkur þeirra muni selja hlut sinn til bræðr­anna. Aðrir eig­endur í Bakkavör eru meðal ann­ars vog­un­ar­sjóð­ur­inn Burlington Loan Mana­gement Ltd. sem eign­að­ist um fimm pró­senta hlut með upp­kaupum á kröfum og hlutafé. Sá sjóður er einnig á meðal stærstu eig­enda Klakka, sem áður hét Exista, og stærstu kröfu­hafa þrota­búa Kaup­þings og Glitnis, sem verður slitið á næst­unni.

Ástandið á milli þess­arra blokka var lengi vel, væg­ast sagt, eld­fimt. Það end­ur­spegl­að­ist vel á fyrsta stjórn­ar­fund­inum sem hald­inn var í Bakkavör eftir að gamla móð­ur­fé­lag­inu var slitið haustið 2012. Arion-blokkin gerði þar kröfu um að fá að skipa stjórn­ar­for­mann félags­ins, en Lýður Guð­munds­son sat þá í því sæti. Fyrir því færði hún tvenns konar rök: Í fyrsta lagi gengi ekki að bræð­urnir héldu tveimur valda­mestu stöð­unum innan Bakka­varar-sam­stæð­unnar, en Ágúst er for­stjóri hennar. Í öðru lagi töldu aðilar í blokk­inni í besta falli óþægi­legt að Lýður sæti sem stjórn­ar­for­maður vegna ákæru sem sér­stakur sak­sókn­ari gaf út á hendur honum vegna hluta­fjár­aukn­ingar í Existu, sem hann hlaut síðar dóm. Arion-blokkin taldi að sú staða gæti skaðað félagið í Bret­landi og því væri það Bakkavör ekki til fram­dráttar að hann gegndi stöð­unni á meðan málið væri leitt til lykta. Bræð­urnir hafa á hinn bóg­inn selt þá sögu í Bret­landi, með góðum árangri, að norna­veiðar eigi sér stað á Íslandi. Þar þurfi að hengja ein­hvern fyrir það sem gerð­ist og þeir, ásamt öðrum, séu fórn­ar­lamb þeirrar kröfu.

Þeir voru ekki sáttir við til­lög­una og bentu á að þeir, sem stærstu ein­stöku eig­endur Bakkavar, ættu rétt á for­manns­sæt­inu.

Frá árinu 2013 var unnið að end­ur­fjár­mögnun Bakka­varar. Þegar henni yrði lokið átti alltaf að setja félagið í sölu­ferli. Ljóst var á sam­tölum við þá sem höfðu komið að rekstri Bakka­varar fyrir hönd fyrrum kröfu­hafa félags­ins að þá myndu bræð­urnir vilja finna ein­hvern sem er þeim hlið­hollur til að kaupa hlut Arion banka og líf­eyr­is­sjóð­anna. Þeir sem voru stærstir í þeirri blokk sögðu hins vegar alltaf í einka­sam­tölum að þeir myndu vilja selja hæst­bjóð­anda, og ræddu þá um sam­keppn­is­að­ila Bakka­varar á borð við Greencore eða Two Sisters, sem myndu ná ein­hverri sam­þætt­ingu í rekstri sínum með kaup­unum.

Og þannig stóðu mál þangað til snemma árs 2016.

Bræðurnir sigra

Á mánu­dag var send til­kynn­ing til fjöl­miðla um að BG12 ehf., félag í eigu Arion banka, Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, Gildi líf­eyr­is­sjóðs, fleiri minni líf­eyr­is­sjóða og fag­fjár­festa hefði selt 46 pró­sent hlut sinn í breska félag­inu Bakkavör Group til félags sem er í eigu bræðr­anna Ágústar og Lýðs og banda­rískra fjár­fest­inga­sjóða í stýr­ingu hjá The Baupost Group L.L.C. Kaup­verðið nam 147 millj­ónum punda, eða 27,3 millj­örðum króna. Sam­ein­aði líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og dótt­ur­fé­lag Klakka seldu jafn­framt sinn fimm pró­sent hlut í Bakkavör Group og má ætla að kaup­verðið hafi verið um þrír millj­arðar króna. Kaup­endur skuld­bundu sig til að leggja fram kauptil­boð í alla aðra útistand­andi hluti í félag­inu, rétt um ell­efu pró­sent, á sömu kjörum.

Bræð­urnir og með­fjár­festar þeirra hafa því eign­ast 89 pró­sent í Bakkavör og skuld­bundið sig til að kaupa þau ell­efu pró­sent sem upp á vantar. Kaup­verðið á þeim hluta verður 6,5 millj­arðar króna.

Gangi allt upp eru Ágúst og Lýður, ásamt með­fjar­festum sínum, að kaupa 62 pró­sent hlut í Bakkavör á 36,8 millj­arða króna. Áður höfðu þeir eign­ast 38 pró­sent fyrir átta millj­arða króna. Virði Bakka­varar hefur því tæp­lega þre­fald­ast frá því að Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins og fleiri seldu bræðr­unum hlut sinn í Bakkavör Group árið 2012. Þeir hefðu betur beðið með þá sölu.

Samkvæmt skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis skuld­aði Exista og tengd félög Kaup­þingi, sem breytt­ist í Arion banka við kenni­tölu­flakk í hrun­inu, 239 millj­arða króna. Eitthvað hefur feng­ist upp í þær kröfur vegna nauða­samn­inga Existu og Bakka­varar, og sölu á hlut í Bakkavör, en ljóst er að sú upp­hæð er fjarri þeirri fjár­hæð sem Kaupþing lán­aði sam­stæð­unni.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins geta verið ánægðir með að fá eitt­hvað til baka af þeim 170,9 millj­örðum króna sem þeir töp­uðu á við­skiptum sínum við Exista og tengda aðila fyrir hrun. En sú upp­hæð er samt sem áður dropi í hafið.

Þeir sem standa uppi sem sig­ur­veg­arar eru Ágúst og Lýður Guð­munds­synir. Þeir hafa end­ur­heimt fyr­ir­tækið sem þeir stofn­uðu á Suð­ur­nesj­unum á níunda ára­tug síð­ustu aldar end­ur­skipu­lagt, end­ur­fjár­magnað og án þess að upp­runa­legir kröfu­hafar þess hafi fengið nema brota­brot af þeim pen­ingum sem þeir lán­uðu eða fjár­festu í félag­inu til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár