Fjölþætt tengsl við skatta­skjól og aflands­svæði Fjöl­þættar upp­lýs­ingar um tengsl Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, við skatta­skjól og aflands­svæði hafa komið fram eftir hrunið. Hann sést hér í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu í rétt­ar­höld­unum fyrir Lands­dómi yfir Geur H. Haarde. Mynd: MBL / Kristinn Ingvarsson

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

„Sjóðnum hefur verið slitið. Hann er ekki einn af okkar sjóðum núna,“ segir Jón Finn­boga­son, fram­kvæmda­stjóri sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Stefnis sem er í eigu Arion banka, aðspurður um stöðu sjóðs­ins Icelandic Travel Service fund sem var að hluta til í eigu félags í skatta­skjól­inu Tortólu sem hét Fultech S.á.r.l. Sjóð­ur­inn stund­aði fjár­fest­ingar í ferða­þjón­ustu á Íslandi frá árinu 2011 til 2019. Þetta voru til dæmis fjár­fest­ingar í nátt­úruperlunni Þrí­hnúka­gíg og Gisti­veri, hót­el­fyr­ir­tæki fjöl­skyldu Hreiðars Más Sig­urðs­sonar sem á meðal ann­ars ION hótel á Nesja­völlum, Hótel Búðir á Snæ­fells­nesi og hótel í Stykk­is­hólmi. 

Árið 2017 rann Tortóla­fé­lagið inn í félag í Lúx­em­borg, Vinson Capital, sem var og er í eigu eig­in­konu Hreiðars Más, Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur. Í kjöl­farið var þetta lúx­em­borgíska félag eig­andi hlut­deild­ar­skír­teina íslenska Stefn­is­sjóðs­ins. Fram að þessu, frá 2011 …

Kjósa
101
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það er ekki upp á ríkisÓstjórnina logið!
    Engin vilji né metnaðu til að ransaka, koma í veg fyrir og eða lögsækja svokallað hvítflibba glæpa hyski, enda er búið að gelda allar eftirlitstofnanir og kom þar fyrir já mannleysum flokkana.
    Hér grasserar svo mikil spilling að ítalska mafían er græn af öfund út í þær íslensku með stærstu skipulögðu glæpasamtök Íslands, sjálfstæðisflokksins sem fara þar fremstir í flokki í allri spillinguni ☻g þar sem Don bjarN1 benediktsson er foringinn yfir öllu hyskinu.
    0
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Viðbjóður
    3
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Það er ekki gott að vera aurasál og hugsa um það eitt að komast yfir sem mest á sem skemmtum tíma
    3
  • Brynja Kjartansdóttir skrifaði
    Takk
    2
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon sér um sína, óþæginda lið innan stjórnar sem utan er kæft smám saman með fullu leyfi heims kapitalismans.
    2
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Það eru öngvir peningar I Tortóla bara sýndar fyrirtæki I eigu íslendinga þjónustað af íslenskum fjármálafyrirtækjum. Og eldgamlar fréttir. Það skortir viljann hjá íslenskum yfirvöldum að stoppa þetta. Sama gildir um aðra staði. Og það er sama hvað fjölmiðlar upplýsa um þessi mál, yfirvöld sitja aðgerðarlaus. Og blaðra fagurgala. Vandamálið er ekki I Tortóla, Kýpur eða erlendis það er i Reykjavík nánar tiltekið i gömlu húsi við Tjörnina
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leyndarmál Kýpur

Kýpurfélag Lovísu sem tók yfir Tortólaeignir fjárfesti í breskum hjúkrunarheimilum
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Kýp­ur­fé­lag Lovísu sem tók yfir Tortóla­eignir fjár­festi í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum

Sama félag og tók yfir Tortóla­eignir Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttur, eig­in­konu Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, slóst í hóp með Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra, og Annie Mist Þór­is­dóttur Crossfit-stjörnu og keypti ráð­andi hlut í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.
Tortólasnúningur Hreiðars á Íslandi afhjúpaðist í Danmörku
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Tortóla­snún­ingur Hreiðars á Íslandi afhjúpað­ist í Danmörku

Sami maður sá um félag Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem afhjúpað­ist í Panama­skjöl­unum og fyrir Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, eig­in­konu hans, og tvær aðrar konur sem giftar eru fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum bank­ans. Ný gögn sýna hvernig pen­ingar úr aflands­fé­lögum á Tortóla flæddu í gegnum sjóðs­stýr­inga­fé­lag Arion banka og inn í íslenska ferða­þjón­ustu.
Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár