Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna

Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Peningar sem geymdir eru í aflands­fé­lögum á eynni Tortóla, í Breska jóm­frú­areyja­kla­s­anum, eru látnir streyma til kýp­verskra félaga til að fjár­magna bygg­ingu lúxus­í­búða á Spáni. Eignir sem seldar hafa verið fyrir meira en 150 millj­ónir króna hver. Þrjár konur eru lyk­il­leik­endur í þessum fast­eigna­verk­efnum sem virð­ast eiga fátt sam­eig­in­legt. Þær eru þó allar eig­in­konur fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings banka, sem ýmist fengu þunga fang­els­is­dóma eða voru dæmdir til að greiða skaða­bætur eftir að bank­inn féll með látum haustið 2008 eins og hinir íslensku við­skipta­bank­arnir. 

Þetta eru þær Anna Lísa Sig­ur­jóns­dóttir, eig­in­kona Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings; Lovísa María Gunn­ars­dóttir, eig­in­kona Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg; og Þór­hildur Ein­ars­dóttir, eig­in­kona Stein­gríms P. Kára­sonar, fyrr­ver­andi for­stöðu­manns áhættu­stýr­ingar Kaup­þings. Saman hafa þær átt nokkur félög sem skráð hafa verið á Tortóla, Kýpur, Danmörku og Spáni. Og um þessi félög hafa hund­ruð millj­óna króna streymt sem hagn­aður og lán. 

Þetta …

Kjósa
104
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Það er ekki upp á ríkisÓstjórnina logið!
    Engin vilji né metnaðu til að ransaka, koma í veg fyrir og eða lögsækja svokallað hvítflibba glæpa hyski, enda er búið að gelda allar eftirlitstofnanir og kom þar fyrir já mannleysum flokkana.
    Hér grasserar svo mikil spilling að ítalska mafían er græn af öfund út í þær íslensku með stærstu skipulögðu glæpasamtök Íslands, sjálfstæðisflokksins sem fara þar fremstir í flokki í allri spillinguni ☻g þar sem Don bjarN1 benediktsson er foringinn yfir öllu hyskinu.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Slæmt, að íslensk stjórnvöld hafi ekki bolmagn, og hugsanlega ekki heldur nægan vilja, til að ráðast í þessi mál. Hver veit hverjir njóta góðs af þessu öllu?
    3
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Hafa nægt bolmagn en öngvan vilja. Hefur verið margsannað hversu auðvelt er að ná í gögnin.
      5
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Afætur og græðgin skín úr andlitum
    6
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Spillingin í hæstu hæðum og kerlingarnar ekkert betri, en eiginmennirnir.
    7
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    https://is.wikipedia.org/wiki/Listi_yfir_afskriftir_fyrirt%C3%A6kja_%C3%AD_kj%C3%B6lfar_efnahagshrunsins_2008
    4
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Þið vitið hverjir það voru sem ollu hruninu á Íslandi 2008 er það ekki? Fjárglæframennirnir sem földu fé sitt á Tortóla á meðan íslenskum almenningi blæddi, börn urðu fátæk og margir misstu húsnæði sitt.

    Hversu margir Íslendingar kenndu Jóhönnu Sigurðardóttur um eymdina? Það má vel vera að hún hefði getað gert allt öðruvísi, við skulum ekki gleyma því að fjármálaráðherra var Steingrímur Joð Sigfússon var fjármálaráðherra í ríkisstjórn JS. Í mínum huga er maðurinn háll sem áll og séstakt rannsóknarefni fyrir mannfræðiinga,

    Spillingin á Íslandi er orðin að umfjöllunarefni víða, stjórnvöld undir forystu Katrínar Jakobsdóttur ættu að vera í tugthúsi.

    Áróðurinn er grímulaus, verkafólk sem berst fyrir því að fá laun sem duga fyrir brýnustu nauðsynjum, eldirborgarar sem berjast fyrir því að vera ekki rændir upp á hvern dag eru ástæða verðbólgu og þeim er nær að stilla kröfur sína í hóf, annars kemur seðlabankastjóri og hækkar vexti enn meira. Lækka frekar en að hækka veiðigjöld, selja erlendum auðjöfrum aðgang að íslenskum náttúruauðlindum þar sem þeir menga og raka saman peningum sem þeir fara með úr landi. Ég gæti setið í allan dag og skrfiað um glæpaverk ríkisstjórnar Katrínu Jakobsdóttur, en ég ætla að láta mér duga að að formæla þessum Kaupþingskonum sem hafa það í sér að halda áfram þar sem frá var horfið. þ.v.s. eiginmenn þeirra sem í boði ríkisstjórnar settu mörg börn á götuna.

    Helvítis fokking fokk!
    21
    • HR
      Hilmar Ragnarsson skrifaði
      Ekki má gleyma að Kaupþingsmenn fengu hvað mestar afskriftir bankalána, en Bjarni Ben kom í veg fyrir að peningarnir sem þeir komu undan í skattaskjólum yrðu eltir uppi. Þetta þarf allt að rannsaka miklu betur svo og hvernig hann, vinir og vandamenn komust undan með milljarða úr sjóði 9 hjá Glitni á gjaldþrotsdegi. Spilling í hæstu hæðum og glæpamenn leika enn lausum hala.
      15
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leyndarmál Kýpur

Kýpurfélag Lovísu sem tók yfir Tortólaeignir fjárfesti í breskum hjúkrunarheimilum
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Kýp­ur­fé­lag Lovísu sem tók yfir Tortóla­eignir fjár­festi í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum

Sama félag og tók yfir Tortóla­eignir Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttur, eig­in­konu Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, slóst í hóp með Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra, og Annie Mist Þór­is­dóttur Crossfit-stjörnu og keypti ráð­andi hlut í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.
Tortólasnúningur Hreiðars á Íslandi afhjúpaðist í Danmörku
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Tortóla­snún­ingur Hreiðars á Íslandi afhjúpað­ist í Danmörku

Sami maður sá um félag Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem afhjúpað­ist í Panama­skjöl­unum og fyrir Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, eig­in­konu hans, og tvær aðrar konur sem giftar eru fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum bank­ans. Ný gögn sýna hvernig pen­ingar úr aflands­fé­lögum á Tortóla flæddu í gegnum sjóðs­stýr­inga­fé­lag Arion banka og inn í íslenska ferða­þjón­ustu.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár