Tortólasnúningur Hreiðars á Íslandi afhjúpaðist í Danmörku

Sami maður sá um félag Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings, sem afhjúpað­ist í Panama­skjöl­unum og fyrir Önnu Lísu Sig­ur­jóns­dóttur, eig­in­konu hans, og tvær aðrar konur sem giftar eru fyrr­ver­andi lyk­il­stjórn­endum bank­ans. Ný gögn sýna hvernig pen­ingar úr aflands­fé­lögum á Tortóla flæddu í gegnum sjóðs­stýr­inga­fé­lag Arion banka og inn í íslenska ferða­þjón­ustu.

Tortólasnúningur Hreiðars á Íslandi afhjúpaðist í Danmörku

Vincent de Canniere, sem gegnir lyk­il­hlut­verki í fjár­fest­ingum sem fram fara í gegnum aflands­fé­laga­net þriggja kvenna sem eiga fátt sam­eig­in­legt annað en að vera giftar fyrr­ver­andi stjórn­endum Kaup­þings banka, sem fjallað var um í for­síðu­um­fjöllun Heim­ild­ar­innar á föstu­dag, hefur áður unnið fyrir sama fólk. Nafn Vincent birt­ist í Panama­skjöl­unum en þá kom hann fram fyrir hönd Tortóla­fé­lags­ins Robinson Associates Inc., sem var stýrt af eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Chartwell & Partners í Sviss, fyr­ir­tækis sem sam­kvæmt banda­rískum dóm­skjölum í ótengdu máli er fyr­ir­tæki Vincents. 

Robinson var stofnað fyrir Hreiðar Má Sig­urðs­son árið 2010. Eftir að hafa hlotið dóm í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða í des­em­ber árið 2013, var gerð breyt­ing á eign­ar­hald­inu og tóku Anna Lísa, eig­in­kona hans, og Arndís Björns­dóttir, eig­in­kona Sigurðar Ein­ars­sonar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Kaupt­hings og eins nán­asta sam­starfs­manns Hreiðars, við sem eig­endur Robin­sons. Í tölvu­póst­sam­skiptum á milli starfs­fólks …

Kjósa
64
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sjá meira

Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Hreiðar var í mörg ár með um 300 milljónir í árslaun svo hluti fjárins gæti verið löglega fengin.
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Getur Sérstakur saksóknari ekki hafið að nýju rannsókn mála í ljósi nýrra upplýsinga?
    5
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Var nokkuð ólöglegt þarna á ferðinni ???

      En eins og vanalega er horft á "vonda kallinn" eða þessu tilfelli "vondu konuna" en ekki á það eina sem skiftir máli... kerfið... n.b. "flæddu í gegn­um sjóðs­stýr­inga­fé­lag Ari­on banka ".

      Sorgleg staðreynd að sjá hvernig bankarnir eru saklausir leiksoppar "vonda fólksins" ... svo er líka Golden Gate brúin á sérstaklega heppilegu verði í dag.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leyndarmál Kýpur

Kýpurfélag Lovísu sem tók yfir Tortólaeignir fjárfesti í breskum hjúkrunarheimilum
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Kýp­ur­fé­lag Lovísu sem tók yfir Tortóla­eignir fjár­festi í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum

Sama félag og tók yfir Tortóla­eignir Lovísu Maríu Gunn­ars­dóttur, eig­in­konu Magnúsar Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi banka­stjóra Kaup­þings í Lúx­em­borg, slóst í hóp með Baldri Guð­laugs­syni, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra, og Annie Mist Þór­is­dóttur Crossfit-stjörnu og keypti ráð­andi hlut í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.
Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Fjárfestingaklúbbur Kaupþingskvenna
RannsóknLeyndarmál Kýpur

Fjár­fest­inga­klúbbur Kaup­þingskvenna

Eig­in­konur þriggja fyrrum stjórn­enda hins fallna Kaup­þings banka eru umsvifa­miklir fjár­festar í fast­eigna­verk­efnum á Spáni og víðar. Peningar sem geymdir eru í félögum á Tortóla og Kýpur eru not­aðir til að byggja lúxus­í­búðir. Hundruð millj­óna króna hagn­aður hefur orðið til í þessum aflands­fé­lögum. Ein þeirra hefur einnig fjár­fest með hópi Íslend­inga í breskum hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár