Starfsmenn 365 ávíttir fyrir að hafa ekki þagað um framkomu forsætisráðherra

„Uppákoma sem varð hér inn­an­húss um helg­ina rataði í frétt á DV, sem er fjarri því að vera í lagi,“ segir í tölvu­pósti aðstoð­ar­rit­stjóra til starfs­manna 365.

Starfsmenn 365 ávíttir fyrir að hafa ekki þagað um framkomu forsætisráðherra

Hrund Þórs­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri frétta­stofu 365, telur að starfs­menn á fjöl­miðl­inum hafi rofið trúnað við for­sæt­is­ráð­herra með því að greina blaða­mönnum DV og Stund­ar­innar frá bræðiskasti sem hann er sagður hafa tekið á rit­stjórn­ar­gólf­inu. Þetta kemur fram í tölvu­pósti Hrundar til starfs­manna á 365 miðlum. 

DV greindi frá því í gær að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefði „tryllst á rit­stjórn 365-miðla“ og að „tryllt öskur“ hefðu ómað um vinnu­stað­inn.

Frétt DV er í grófum dráttum í sam­ræmi við frá­sögn heim­ild­ar­manna Stund­ar­innar sem urðu vitni að atvik­inu. 

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var fram­koma Bjarna við­höfð í opnu rými og án þess að óskað hefði verið sér­staks trún­aðar um sam­skiptin.

Að því er fram kemur í tölvu­póst­inum sem starfs­mönnum barst í morgun og Stundin hefur undir höndum er litið svo á að starfs­menn hefðu átt að þegja um fram­komu for­sæt­is­ráð­herra. Er vísað til atviks­ins sem „upp­á­komu sem varð hér inn­an­húss“. 

„Ég sendi þennan póst til að ítreka mik­il­vægi þess að starfs­menn hér á hæð­inni haldi trúnað við frétta­stof­una og sam­starfs­fólk sitt. Uppákoma sem varð hér inn­an­húss um helg­ina rataði í frétt á DV, sem er fjarri því að vera í lagi,“ segir í tölvu­póst­inum. 

Aðstoð­ar­rit­stjór­inn vitnar í 1. gr. siða­reglna Blaða­manna­fé­lags Íslands, en þar stendur: Blaða­maður leit­ast við að gera ekk­ert það, sem til van­virðu má telja fyrir stétt sína eða stétt­ar­fé­lag, blað eða frétta­stofu. Honum ber að forð­ast hvað­eina sem rýrt gæti álit almenn­ings á starfi blaða­manns eða skert hags­muni stétt­ar­innar. Blaða­maður skal jafnan sýna dreng­skap í skiptum sínum við starfs­fé­laga.

„Þetta er lyk­il­at­riði í starfi okkar og má aldrei klikka“

„Fólk sem hér vinnur, og ekki síður við­mæl­endur og aðrir sem eigi erindi inn á rit­stjórn­ar­skrif­stof­una, VERÐA að geta treyst því að hér ríki trún­aður. Þetta er lyk­il­at­riði í starfi okkar og má aldrei klikka. Það sem ger­ist á frétta­stof­unni fer ekki út fyrir frétta­stof­una. Höfum þetta alltaf í huga,“ segir í tölvu­pósti Hrundar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár