Björn fagnar „sögulegum ummælum“ Bjarna um útlendinga

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra sem átti lyk­il­þátt í mótun íslenskrar útlend­inga­stefnu upp úr alda­mótum, segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn vera eina stjórn­mála­flokk­ur­inn á Íslandi með þrek til að taka útlend­inga­mál til umræðu á mál­efna­legan hátt.

Björn fagnar „sögulegum ummælum“ Bjarna um útlendinga

Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra sem átti lyk­il­þátt í mótun íslenskrar útlend­inga­stefnu upp úr alda­mótum, fagnar ummælum for­sæt­is­ráð­herra um að það hafi verið „slæm ráð­stöfun“ að veita albönskum fjöl­skyldum með lang­veik börn rík­is­borg­ara­rétt í lok árs­ins 2015 og að Íslend­ingar verði að beita ströngum reglum svo „við fáum ekki yfir okkur milljón flótta­menn“. 

Telur Björn að mál­flutn­ingur Bjarna Bene­dikts­sonar sé sögu­legur og til marks um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé eini stjórn­mála­flokk­ur­inn á Íslandi sem hafi þrek til að taka útlend­inga­mál til umræðu á mál­efna­legan hátt. 

„Útlend­inga­mál eru rædd á allt annan veg á stjórn­mála­vett­vangi hér en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum þar sem þau má telja meðal kjarna­mála. Því var til dæmis fagnað af dönskum stjórn­mála­mönnum í gær, 13. sept­em­ber, að Danmörk hefur hrapað niður vin­sælda­list­ann hjá hæl­is­leit­endum þegar litið er til sam­an­burðar milli ESB-ríkja, landið er nú í 17 sæti á list­anum og þakkar útlend­inga­mála­ráð­herr­ann það rúm­lega 60 breyt­ingum á reglum um með­ferð útlend­inga­mála, ákvarð­anir voru teknar um að herða regl­urnar,“ skrifar Björn í blogg­pistli í dag. Hann segir að með frum­varpi Sam­fylk­ing­ar­innar um að hæl­is­leit­end­urnir Hanyie og Mary og fjöl­skyldur þeirra fái rík­is­borg­ara­rétt feli í sér að grafið sé undan ákvæðum nýsettra útlend­inga­laga. 

Haft var eftir Bjarna Bene­dikts­syni á Mbl.is í gær að lög­reglan hætti sér ekki óvopnuð í Víðines þar sem fjöldi hæl­is­leit­enda var vistaður um skeið. Þá sagði for­sæt­is­ráð­herra erfitt að horfa á eftir miklum fjár­munum sem varið væri til hæl­is­leit­enda­mála. Engu að síður þyrfti að virða mann­úð­ar­sjón­ar­mið og mann­rétt­indi. 

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hefur hert veru­lega stefnu Íslands í hæl­is­leit­enda­málum frá því hún tók við í jan­úar, meðal ann­ars með því að svipta til­tekna hópa hæl­is­leit­enda rétt­inum til að fá rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun frestað vegna kæru til æðra stjórn­valds eða dóm­stóla og með því að svipta hæl­is­leit­endur rétt­inum til fram­færslu­fjár eftir að hæl­is­um­sóknum þeirra er synjað og þeir bíða þess að vera sendir úr landi. 

Formaður efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis hefur kallað eftir því að ákveðnum hópi hæl­is­leit­enda verði mætt með „hörðum stál­hnefa“.

Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður stjórn­ar­flokks­ins Bjartrar fram­tíðar kall­aði hins vegar eftir því í eld­hús­dags­um­ræðum í gær að Íslend­ingar sýndu hug­rekki til að taka slag­inn fyrir mann­rétt­indum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár