Annar boðar kærleika og sátt, hinn átök og íhaldssemi. Demókratinn James Talarico og repúblikaninn Ken Paxton vísa báðir til kristinnar trúar í harðri kosningabaráttu um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Úrslitin í Texas gætu ráðið miklu um hvor flokkurinn nær yfirráðum á Bandaríkjaþingi.
James Talarico, 37 ára fyrrverandi kennari sem stefnir að því að verða prestur í öldungakirkjunni, er frambjóðandi Demókrataflokksins. Andstæðingur hans er Ken Paxton, 63 ára repúblikani sem hefur haldið pólitískum ferli sínum á floti þrátt fyrir fjölmörg hneykslismál, ekki síst vegna hollustu sinnar við Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Kosningabarátta þeirra fyrir þingkosningarnar 3. nóvember er orðin mun jafnari en búist var við í Texas, þar sem enginn demókrati hefur náð kjöri í embætti á ríkisstigi síðan 1994. Kjósendur standa því frammi fyrir vali á milli tveggja stjórnmálamanna sem eru gjörólíkir að mörgu leyti.
James Talarico: Stjórnmál kærleikans
Þegar James Talarico var barn á dagheimili kirkjunnar …

























































Athugasemdir