Skólahald í skjóli loftvarnaflauta

Skóla­hald í Grinda­vík hefur gengið vel og óslitið frá því það hófst í lok ágúst. Loft­varn­arflautur eru próf­aðar í lok hvers mán­aðar og rým­ing­ar­á­ætl­anir æfðar. Um þrjá­tíu skóla­börn eru í bænum.

Skólahald í skjóli loftvarnaflauta
Í vari Hér má sjá skóla­barn á leið heim úr skól­anum með víga­legan og gró­inn varn­ar­garð í bak­sýn. Mynd: Golli

Skóla­hald á Íslandi verður varla sér­kenni­legra en í Grinda­vík þennan vet­ur­inn. Tæplega þrjá­tíu nem­endur eru í öllum grunn­skólum Grinda­víkur. Kennslu­stundir eru haldnar í skjóli loft­varnaflauta og eld­goss sem gæti brot­ist fram á hverri stundu. Miklir varn­ar­garðar eru allt um kring eins og sést á með­fylgj­andi ljós­mynd þar sem ung­lingur heldur heim á leið, umluk­inn hörðum hvers­dags­leika Grinda­víkur. 

Gos­hrinur síð­ustu ára hafa nán­ast lagt sveit­ar­fé­lagið í eyði. Bæj­ar­búar berj­ast þó fyrir end­ur­reisn sveit­ar­fé­lags­ins og þá skiptir skól­inn höf­uð­máli. Auk þess er stefnt á stór­aukið frí­stunda­starf barna og ung­menna.

Frábrugðið því sem skólastjórinn þekkir

„Skóla­hald fór vel af stað og hefur bara gengið vel,“ segir Guðlaug Erlends­dóttir, skóla­stjóri Grinda­vík­ur­skóla. Hún er þaul­reyndur skóla­stjórn­andi sem hefur starfað víða um land. Hún segir 27 börn vera í skól­anum frá 1. til 10. bekkjar auk þess sem tíu börn eru í leik­skóla bæj­ar­ins.

„Þetta er frá­brugðið því sem ég þekki og telst hefð­bundið,“ svarar Guðlaug, …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár