Tímabært að verja Reykjanesbraut
Mynd: Golli Mynd: Golli

Tímabært að verja Reykjanesbraut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Þor­valdur Þórð­ar­son var á leið að eld­gos­inu síð­degis á fimmtu­dag til að meta aðstæður á vett­vangi. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið er hann hvergi nærri búinn að fá nóg af eld­gosum. „Það verð ég aldrei,“ segir hann og við­ur­kennir að það sé eitt það skemmti­leg­asta sem hann geri að fylgj­ast með þeim. „Þetta er dáleið­andi. Eldgos hafa sterkt aðdrátt­ar­afl, það verður að segj­ast eins og er.“ 

Hann sagð­ist eiga von á því að gos­inu myndi ljúka með nótt­inni. „Þetta er nátt­úr­lega til­tölu­lega lítið gos. Það hófst með nokkru afli og stefndi í að verða svipað og gosið þann 18. des­em­ber, en datt mjög hratt niður.“ 

Eld­fjalla­fræð­ingurÞor­valdur Þórð­ar­son.

Ekki séð þessa þróun áður

Um morg­un­inn var virkni mest fyrir miðja gossprungu en upp úr hádegi fór að draga mjög úr virkni gossprung­unnar og klukkan korter yfir eitt hætti kvika að koma þar upp. …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár