Rak ýtuna í hraunið: „Ég varð bara að prófa“

Þröstur Kjaran Elísson véla­maður starfar við gerð varn­ar­garða í Svarts­engi. Hann er dug­legur að deila mynd­böndum af aðgerðum á Facebook-síðu sinni. Á einu þeirra má sjá Þröst pota í hraunið með jarð­ýtu sinni. Þetta gerði hann við störf sín á fimmtu­dags­kvöldið þegar enn gaus í Svarts­engi.

Þröstur Kjaran Elísson véla­maður hefur starfað við gerð varn­ar­garða í Svarts­engi síðan í nóv­em­ber. Á fimmtu­dags­kvöldið var hann að starfa upp við gló­andi hraun­breið­una og próf­aði að reka tönn­ina á jarð­ýtu sinni í hana. Mynd­bandi sem sýnir atvikið deildi hann á Facebook. Undir færsl­una skrifar hann „Ég bara varð að prófa...“

Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist Þröstur ekki vera hræddur við hraunið. „Það þýðir ekk­ert. Þetta er farið að kom­ast upp í vana.“ Nálægðin við eld­gos venj­ist eins og hvað annað. „Þetta er hlýtt og nota­legt,“ segir hann.

Blm: Og ýtan þolir þetta alveg?

„Jájá. Þetta er úr járni. Það eru aðrir strákar þarna og þeir eru graf­andi ofan í þetta. Þetta er góður hópur og hlut­irnir eru að ganga upp þarna.“

Þröstur segir ekk­ert streitu­vald­andi að vinna varn­ar­garð­ana í kappi við tím­ann með eld­gos yfir­vof­andi. „Þetta er ekki stressandi fyrir mig. Frekar hvetj­andi. Þetta …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HG
    Hjalmar Gunnarsson skrifaði
    Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni ef hann er sonur þess sem ég held 👌👌
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.
Í Grindavík er enn 10. nóvember
VettvangurJarðhræringar við Grindavík

Í Grinda­vík er enn 10. nóv­em­ber

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár