Mynd: Helgi Seljan

Í Grindavík er enn 10. nóvember

Það er nógu leið­in­legt að flytja, þegar maður velur sér það sjálfur, hvað þá þegar maður neyð­ist til þess. Og hvernig velur maður hvað eigi að taka með sér og hvað ekki, þegar maður yfir­gefur stórt ein­býl­is­hús með tvö­földum bíl­skúr fyrir litla íbúð með lít­illi geymslu? Fjöl­skyldan á Blómst­ur­völlum 10 í Grinda­vík stóð frammi fyrir þeirri spurn­ingu síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Lögregla og Almanna­varnir höfðu þá tekið ákvörðun um að íbúum Grinda­víkur yrði hleypt inn í hollum, sex tíma hvert þeirra, svo þau gætu vitjað eigna sinna og flutt með sér það sem þau höfðu skilið eftir, síð­ast þegar opn­að­ist tæki­færi til að fara inn í bæinn.

„Við höfum ekki sofið hérna síðan í nóv­em­ber,“ segir Vilborg Telma Ólafs þegar við hitt­umst í eld­hús­inu heima hjá henni snemma um morg­un­inn. Vilborg og Theódór Rík­harðs­son hafa búið saman í hús­inu síðan árið 2020. Saman eiga þau 7 börn. Vilborg 5 og Teddi tvö. Þau elstu farin að heiman en fjögur búa enn heima.

Teddi er skip­stjóri á Vésteini GK og mikið fjar­ver­andi enda róið stóran hluta árs­ins frá Stöðv­ar­firði. Sjálfur er hann upp­al­inn á Djúpa­vogi. Vilborg í Keflavík. „Ég kýs að líta fram hjá því,“ segir Teddi og glottir. Vilborg líka. Aug­ljós­lega ekki að heyra þennan í fyrsta skipti. 

…

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár