Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boða hallalaus fjárlög í fyrsta sinn í tæpan áratug. Hallarekstur hefur verið á ríkissjóði í átta ár.
Á blaðamannafundi í morgun komu þau fram ásamt Ingu Sæland menntamálaráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og kynntu þar áform sín um að ná hallalausum fjárlögum. Þau segjast ná markmiðinu með skatti á baðlón, kílómetragjaldi, bankaskatti og gjaldtöku á ferðaþjónustu, samhliða niðurskurði upp á 44 milljarða króna.
Á blaðamannafundi í morgun skrifaði Kristrún með táknrænum hætti töluna 0 á spjald á sviðinu, sem átti að tákna hallarekstur ríkisins.
„Ríkissjóður hefur verið rekinn með halla samfleytt í átta ár. Nú höfum við snúið þeim mínus í plús og fært ríkisfjármálin á traustari grunn. Þetta er mögulegt vegna þess að við erum að halda aftur af útgjaldavexti, bæta rekstur ríkisins og forgangsraða fjármunum í þágu velferðar og grunnþjónustu. Hallalaus fjárlög eru ekki markmið í sjálfu sér heldur …
















































Athugasemdir