Kristrún segir bankana geta tekið skattahækkunina á sig

For­sæt­is­ráð­herra seg­ir bank­ana geta brú­að fyr­ir­hug­aða hækk­un banka­skatts án þess að velta kostn­að­in­um yf­ir á við­skipta­vini. Sig­ríð­ur And­er­sen seg­ir skatt­inn geta dreg­ið úr út­lána­getu bank­anna og haft áhrif á líf­eyr­is­sjóði og lán­tak­end­ur.

Kristrún segir bankana geta tekið skattahækkunina á sig

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir íslensku bankana geta tekið á sig fyrirhugaða hækkun bankaskatts án þess að velta kostnaðinum yfir á viðskiptavini sína.

„Ég veit alveg að bankarnir geta vel brúað þetta án þess að varpa þessu yfir á neytendur,“ sagði Kristrún í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í gær.

Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, spurði forsætisráðherra út í fyrirhugaða hækkun bankaskatts í tengslum við fjárlög næsta árs. Hún sagði sex milljarða króna viðbótarskatt á bankana geta haft víðtækari áhrif en stjórnvöld létu í veðri vaka.

Sigríður vísaði til fundar Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu fyrr um daginn þar sem fram hefði komið að sex milljarða króna aukinn skattur gæti dregið úr útlánagetu bankanna um allt að 50 milljarða króna.

„Það munar um minna þegar þarf að fjármagna húsnæðislán fjölskyldnanna,“ sagði Sigríður. Hún gagnrýndi að ekki lægi fyrir nægilegt mat á áhrifum skattahækkunarinnar á bankana, viðskiptavini þeirra og eigendur.

Sigríður benti á …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár