Daði segir framúrkeyrslu ríkisins hafa minnkað

Guðrún Hafsteins­dóttir gagnrýndi ríkis­stjórnina fyrir að hafa brugðist of seint við halla­rekstri ríkis­sjóðs. Daði Már Krist­ófersson fjármála­ráðherra hafnaði gagn­rýninni og sagði framkvæmd fjárlaga hafa batnað á kjör­tímabilinu.

Hallalaus
Halla­laus Daði hefur lagt fram halla­laus fjár­lög en ljóst er að það þarf lítið sem ekk­ert að fara úrskeiðis eða breyt­ast til að það klikki. Mynd: Golli

Daði Már Krist­ófersson fjármála- og efnahags­ráðherra segir fram­úrkeyrslu í ríkis­rekstri hafa minnkað í tíð núverandi ríkis­stjórnar og hafnar gagnrýni Guðrúnar Hafsteins­dóttur, þingmanns Sjálfstæðis­flokksins, um að ríkis­stjórnin hafi látið hjá líða að beita nægilegu aðhaldi í ríkis­fjármálum. 

Guðrún beindi óundirbúinni fyrir­spurn til Daða á Alþingi í dag og gagnrýndi ríkis­stjórnina fyrir að vísa ítrekað til útgjalda fyrri ríkis­stjórnar þegar halla­rekstur ríkis­sjóðs væri ræddur. Hún sagði núverandi ríkis­stjórn sjálfa hafa aukið hallann og spurði hvers vegna ekki hefði verið gripið fyrr til aðhalds.

„Hvers vegna var ekki strax hafist handa við aðhald í ríkis­fjármálunum þannig að verð­bólgan gæti haldið áfram að þokast nær markmiði og vextir haldið áfram að lækka?“ spurði Guðrún.

Hún sagði upphaf­lega hafa verið stefnt að mun minni halla á þessu ári en nú blasir við. „Hvers vegna lætur ríkis­stjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu en klappar sér svo á bakið eins …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár