VG segir forgangsröðun fjárlaganna „kolranga gagnvart almenningi“

Vinstri græn vilja að rík­is­stjórnin end­ur­skoði aðhalds­að­gerðir í fjár­laga­frum­varpi næsta árs. Flokk­ur­inn varar við því að nið­ur­skurður og fækkun rík­is­starfs­manna geti aukið sam­drátt í hag­kerf­inu og krefst þess að fallið verði frá auk­inni gjald­töku í heil­brigð­is­kerf­inu.

VG segir forgangsröðun fjárlaganna „kolranga gagnvart almenningi“
Formaður Rósa BJörk tók við sem for­maður Vinstri grænna eftir að flokk­ur­inn féll af þingi í síð­ustu kosn­ingum. Flokkur hennar hefur mælst með tæp­lega fimm pró­senta fylgi. Mynd: Golli

Vinstri græn gagn­rýna fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Kristrúnar Frosta­dóttur fyrir árið 2027 og segja mark­miðið um halla­lausan rík­is­sjóð ekki mega nást á kostnað almenn­ings. Flokk­ur­inn vill meðal ann­ars falla frá auknum komu­gjöldum í heil­brigð­is­kerf­inu, end­ur­skoða fækkun rík­is­starfs­manna og auka fram­lög til lofts­lags­að­gerða.

„For­gangs­röðun rík­is­stjórn­ar­innar í fjár­laga­frum­varp­inu er kol­röng gagn­vart almenn­ingi og ekki í neinu sam­ræmi við þau fyr­ir­heit stjórn­valda að verja til­tekna hópa sam­fé­lags­ins,“ segir í umsögn­inni, sem Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, for­maður VG, og Bjarki Hjör­leifs­son, vara­for­maður, und­ir­rita.

VG seg­ist almennt styðja halla­laus fjár­lög og nið­ur­greiðslu rík­is­skulda, auk fyr­ir­hug­aðrar hækk­unar banka­skatts. Flokk­ur­inn telur þó afkomu­mark­miðið brot­hætt: Frum­varpið geri ráð fyrir 44,2 millj­arða króna aðhaldi en aðeins 4,7 millj­arða afgangi.

Vilja framkvæmdir í stað niðurskurðar

Flokk­ur­inn varar við að sam­dráttur í rík­is­rekstri á sama tíma og atvinnu­leysi auk­ist geti magnað nið­ur­sveifl­una. Ríkið ætti þess í stað að ráð­ast í hús­næð­is­upp­bygg­ingu, orku­skipti og við­hald opin­berra mann­virkja.

Flokk­ur­inn gagn­rýnir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár