Bensínlítrinn jafngildi 452 krónum hjá sparneytnum bílum eftir hækkun ríkisins

Fyr­ir­huguð hækkun kíló­metra­gjalds gæti gert það að verkum að kostn­aður við akstur spar­neyt­inna bíla jafn­gildi allt að 452 króna bens­ín­lítra og 486 króna dís­ellítra, sam­kvæmt útreikn­ingum Visku.

Bensínlítrinn jafngildi 452 krónum hjá sparneytnum bílum eftir hækkun ríkisins

Fyr­ir­huguð hækkun kíló­metra­gjalds á næsta ári mun gera það að verkum að elds­neytis­kostn­aður og kíló­metra­gjald spar­neyt­ins bens­ín­bíls jafn­gildi 452 króna verði á hvern lítra. Hjá dísil­bíl með sömu eyðslu er sam­svar­andi tala 486 krónur.

Þetta kemur fram í grein­ingu Visku á fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir næsta ár, sem Vil­hjálmur Hilm­ars­son, hag­fræð­ingur félags­ins, skrifar. Hann umreikn­aði kíló­metra­gjaldið yfir í jafn­gildi skatts á hvern lítra elds­neytis til að bera nýja gjald­töku­kerfið saman við eldra kerfi elds­neyt­is­skatta.

„Ríkið getur ekki ætl­ast til verð­stöð­ug­leika af atvinnu­líf­inu á sama tíma og það verð­tryggir eigin gjald­skrár.“

Í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir að krónu­tölu­gjöld hækki almennt um 5,2 pró­sent í takt við verð­bólgu­for­sendur. Þar að auki er gert ráð fyrir að kíló­metra­gjaldið skili rík­is­sjóði fjórum millj­örðum króna til við­bótar umfram verð­lags­upp­færsl­una. Viska segir breyt­ing­arnar sam­an­lagt jafn­gilda 15,9 pró­senta hækkun kíló­metra­gjalds­ins.

Tekjur rík­is­sjóðs af öku­tækjum og elds­neyti eru áætl­aðar um …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÞM
    Kristín Þ. Magnúsdóttir skrifaði
    Bensínlítirinn hækka ekki krónu en kílómetragjaldið hækkar um 1,2 kr. Þannig að 100 eknir kílómetrar kosta 120 kr í viðbót. Vona að þið hafið ekki verið að margfalda bensínverðið með 16%. Það er alrangt.
    0
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þetta er orðið alveg ofboðslega dýrt, um það er ekki hægt að deila. Mér finnst samt vera hugsanavilla í framsetningunni, kílómetragjald er ekki eldsneytisgjald eða tengt neinu kolefni, heldur bara skattur á notkun per kílómeter af þjóðvegakerfi. Það er ekki gott að blanda saman hugtökum, næg er nú upplýsinga óreiðan samt í dag.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

Hildur segir tillögu um bókasöfn hafa verið óheppilega orðaða
4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár