Ríkisstjórnin veðjar á núllpunktinn

Skattur á sam­göngur, ferða­þjón­ustu og banka á að fjár­magna hallalus fjár­mál, sam­hliða nið­ur­skurði upp á 44 millj­arða króna. Íslenska ríkið reynir að losa sig út úr víta­hring hárra vaxta.

Ríkisstjórnin veðjar á núllpunktinn
Á blaða­manna­fundi í morgun Inga Sæland mennta­mála­ráð­herra, Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra kynntu saman fyr­ir­huguð halla­laus fjár­lög. Mynd: Golli

Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra og Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boða halla­laus fjár­lög í fyrsta sinn í tæpan ára­tug. Halla­rekstur hefur verið á rík­is­sjóði í átta ár.

Á blaða­manna­fundi í morgun komu þau fram ásamt Ingu Sæland mennta­mála­ráð­herra og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og kynntu þar áform sín um að ná halla­lausum fjár­lögum. Þau segj­ast ná mark­mið­inu með skatti á bað­lón, kíló­metra­gjaldi, banka­skatti og gjald­töku á ferða­þjón­ustu, sam­hliða nið­ur­skurði upp á 44 millj­arða króna.

Á blaða­manna­fundi í morgun skrif­aði Kristrún með tákn­rænum hætti töl­una 0 á spjald á svið­inu, sem átti að tákna halla­rekstur rík­is­ins.

„Rík­is­sjóður hefur verið rek­inn með halla sam­fleytt í átta ár. Nú höfum við snúið þeim mínus í plús og fært rík­is­fjár­málin á traust­ari grunn. Þetta er mögu­legt vegna þess að við erum að halda aftur af útgjalda­vexti, bæta rekstur rík­is­ins og for­gangs­raða fjár­munum í þágu vel­ferðar og grunn­þjón­ustu. Halla­laus fjár­lög eru ekki mark­mið í …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    mér lýst vel á þetta nema ég held að markmiðin séu heldur brött hefði mátt taka tvö ár í þetta. til þess að ná í meiri tkjur hefði þurft að hækka skatta á þáþsem þola það sannanlega ég hef bent monnum á að finna óþrjótandi uppsprettur í Heimildinni þar sem við sjáum óréttlætið með berum augum
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár