Grænland og ESB innsigla samstarf

„Gríð­ar­legar“ fjár­fest­ingar frá Evr­ópu­sam­band­inu boð­aðar á Græn­landi, sem verður „sífellt mik­il­væg­ara fyrir ESB“.

Grænland og ESB innsigla samstarf
Ursula von der Leyen Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­ráðs­ins heim­sækir Grænland. Mynd: AFP

Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, heldur til Græn­lands í dag í tveggja daga heim­sókn til að ítreka stuðn­ing sam­bands­ins við þetta næsta nágranna­land Íslands og sjálf­stjórn­ar­svæði Dan­merkur, sem Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur auga­stað á.

Á mánu­dag er fyr­ir­hugað að hún und­ir­riti sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu Evr­ópu­sam­bands­ins og Græn­lands.

„Grænland verður sífellt mik­il­væg­ara fyrir ESB sem hlið að norð­ur­slóðum og vegna land­póli­tískrar legu sinnar, mik­il­vægra hrá­efna og hlut­verks í örygg­is­málum á norð­ur­slóðum,“ sagði Marc Jacobsen, fræði­maður við danska varn­ar­mála­há­skól­ann, í sam­tali við AFP-frétta­stof­una.

Trump hélt því afdrátt­ar­laust fram fyrr á þessu ári að Banda­ríkin þyrftu að ráða yfir eyj­unni víð­áttu­miklu á norð­ur­slóðum af þjóðar­ör­ygg­is­á­stæðum, þótt hann úti­lok­aði að lokum að inn­lima hana með valdi.

Vinnu­hópur á vegum Dan­merkur, Græn­lands og Banda­ríkj­anna hefur síðan fundað reglu­lega til að ná sam­komu­lagi um sam­starf til fram­tíðar.

Í kjöl­far hót­ana Trumps lýstu Evr­ópu­ríki almennt yfir stuðn­ingi við Danmörku og Grænland. Í jan­úar hét von …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Hvar ætlar næstum gjaldþrota Evrópsamband að finna fé til að verja í "gríðarlegar fjárfestingar" á Grænlandi? Kannski með skattlagningu á aðildarríki ESB?

    Grænland var fyrsta ríkið til að segja sig úr ESB eftir þjóðaratkvæðagreiðslu árið 1982.

    Grænland er ekki í Evrópu heldur Norður Ameríku. Hvað þykist ESB eiga upp á dekk þar?
    -6
    • SHP
      Sveinbjörn Hermann Pálsson skrifaði
      Fjárfestingar, eins og felst í orðinu, skila sér til baka. Kannski eru evrópskir aðilar að fara að halda í námugröft? Það er ekki gefið að þetta séu peningar hins opinbera.
      Og Grænland má tilheyra þeim sem þau vilja. Taktu eftir að ESB er vel tekið a Grænlandi, ólíkt bandarískum erindrekum.
      3
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      49. gr. sáttmálans um Evrópusambandið:

      "Sérhvert Evrópuríki, sem virðir þau gildi sem um getur í 2. gr. og einsetur sér að stuðla að þeim, getur sótt um að gerast aðili að Sambandinu. ..." ATH: "Evrópuríki" er lykilorðið.

      Grænland er í Norður Ameríku, ekki Evrópu.

      Afríkuríkið Marokkó sótti um aðild að Evrópubandalaginu árið 1987 en var synjað á þeim grundvelli að það væri ekki Evrópuríki.

      Nýlegir atburðir varðandi Ísland hafa þó sýnt að ESB er ekki alltaf samkvæmt sjálfu sér...

      Þessi ferð Ursulu til Grænlands núna er greininlega fyrst og fremst í þeim tilgangi að senda skilaboð til Washington, hvað sem yfirlýstum tilgangi líður að öðru leyti.
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/09/06/yfir_100_milljardar_i_beinan_studning_til_graenland/

      "Með tveggja daga heimsókn sinni hyggst von der Leyen senda þau skilaboð að Grænland tilheyri Evrópu fremur en Bandaríkjunum." - Kann hún ekki að lesa landakort?

      "Framkvæmdastjórnin hefur lagt til að tvöfalda beina aðstoð ESB við Grænland í 530 milljónir evra (74,5 milljarða íslenskra króna) í næstu fjárlögum sambandsins fyrir tímabilið 2028–2034.

      Þá herma heimildir Financial Times að von der Leyen leggi til viðbótarstuðning upp á 200 milljónir evra, eða tæplega þrjátíu milljarða íslenskra króna, í heimsókn sinni."

      Semsagt "aðstoð" (ekki fjárfesting) á kostnað skattgreiðenda Evrópusambandsríkja.

      Þar höfum við það.
      0
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      1. Hvaðan vilt þú vita að ESB er gjaldþrota? Það á frekar við um BNA.
      2. Grænland var fyrst numið af norrænum mönnum (Inuitar komu seinna) og hefur lengi verið tengt Danmörku, menningarlegu tengslin hins vegar eru norðurslóðamenning frumbyggja sem BNA hafa mjög lítið við að gera, helst bara í Alaska.
      Í jarðfræðilegum skilningi er Grænland auðvitað á Norðurameríkuflekanum - en við Ísland sundurslitið land.
      3. Hvað þýkist ESB upp á dekk þar? ESB stendur saman þrátt fyrir marga ágreininga - og það truflar bæði Trump og Putin, þess vegna þolir hvorugur ESB.
      4. Að Marokko (og Tyrkland) hafa ekki fengið inngöngu í ESB er að stórum hluta líka af því þar er ekki lýðræðisstjórn sem fullnægjar kröfum ESB.
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Tómas Maríuson.

      1. Hvort Bandaríkin séu gjaldþrota kemur málinu ekki við. Fréttin er um það að ESB ætli að senda Grænlendingum fé úr vösum skattgreiðenda í ESB, ekki Bandaríkjunum.

      2. Ég er að tala um nútímann en ekki forna fortíð og í nútímanum er Grænland ekki í Evrópu eins og mörkin milli heimsálfa eru skilgreind. Um það verður ekki deilt. Ef þú vilt hins vegar byggja tilkall til Grænlands á grundvelli landsnámsréttar, þá ætti það auðvitað að tilheyra Íslandi og Ísland hvorki er né ætlar sér í ESB.

      3. Hvergi í TFEU kemur fram að það sé í verkahring ESB að pirra leiðtoga þjóðríkja.

      4. Þegar aðildarumsókn Marokkó var synjað var sérstaklega tekið fram að það væri vegna þess að það væri ekki Evrópuríki, en ekki að það væri vegna stjórnarfars.

      Vissulega er stjórnarfar ástæða þess að Tyrklandi hefur ekki verið hleypt inn, en 47. gr. TFEU útilokar ekki aðild þess af landfræðilegum ástæðum því það er bæði Evrópuríki og Asíuríki. Hér er því ólíku saman að jafna enda er enginn hluti Grænlands í Evrópu.

      Af sömu ástæðu stæði 47. gr. TFEU þó ekki í vegi fyrir inngöngu í ESB ef Grænland tilheyrði Íslandi og það væri vilji Íslendinga (sem Grænlendingar væru þá líka).
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.
Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
ErlentGrænlandsmálið

Ferða­þjón­usta á hjara ver­aldar: Græn­lend­ingar læra af mis­tökum Íslend­inga

Grænland vill að ferða­þjón­usta standi undir fjöru­tíu pró­sentum af útflutn­ings­tekjum lands­ins árið 2035. Athygli alþjóða­sam­fé­lags­ins hefur beinst að þess­ari stærstu eyju heims og sér­fræð­ingar segja Banda­ríkja­for­seta hafa aukið áhuga á land­inu líkt og eld­gosið við „Eyja­fjalla­jökul“ gerði hér. Heim­ildin rýndi í þróun ferða­þjón­ust­unnar á Græn­landi sem hefur lært af ávinn­ingum og mis­tökum nágranna­rík­is­ins Íslands.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár