Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur

Að­al­heið­ur S. Gunn­ars­dótt­ir er eina kon­an með yf­ir millj­arð í árs­tekj­ur á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár. Fjór­ar af tíu tekju­hæstu kon­um lands­ins tengj­ast út­gerð­um.

Skattadrottning með 1,4 milljarða í árstekjur

Aðalheiður S. Gunnarsdóttir er efst kvenna á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Hún er sömuleiðis eina konan sem var með yfir milljarð í tekjur en það voru ellefu karlar líka. Aðalheiður er í 5. sæti listans í heild sinni með 1.420.072.762 krónur í árstekjur. Hún er búsett í Garðabæ og er fjármálastjóri og hluthafi í fjölskyldufyrirtækinu J.S. Gunnarsson sem flytur inn fatnað, skó og íþróttavörur. Meðal helstu vörumerkja fyrirtækisins eru Didriksons, Viking, Arena og Kombi. Aðalheiður gekk til liðs við fyrirtækið um 1990 og hefur síðan þá verið hluti af eigendahópi þess ásamt bræðrum sínum, Steindóri og Jóhanni Inga Gunnarssonum.

Tekjur fjögurra kvenna á listanum tengjast útgerðum. Í 3. og 4. sæti listans eru þær Bára Höskuldsdóttir og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sem báðar eru búsettar í Dalvíkurbyggð. Bára var hluthafi í fjölskylduútgerðinni Sólrúnu ehf. á Árskógssandi, sem GPG Seafood ehf. á Húsavík keypti í ársbyrjun 2025. Eyrún er sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar en …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár