Dekk og líkamsrækt skila milljónum í kassann

Framkvæmda­stjóri Dekkja­hallarinnar og eigandi líkams­ræktar verma toppsætin yfir þau tekju­hæstu á Austur­landi í ár.

Eskifjörður á fallegum degi
Eski­fjörður á fal­legum degi All­nokkrir á list­anum tengj­ast sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Eskju á Eski­firði. Mynd: Fjarðabyggð

Jóhannes Jóhannesson er tekju­hæsti einstaklingurinn á Austur­landi þetta árið en hann var með 398 milljónir króna í árstekjur samkvæmt upplýsingum hjá skattinum og birtust í tekju­blaði Heimildarinnar. Fátt er vitað um Jóhannes annað en að hann er frá Fjarðar­byggð. Hann er í 64. sæti yfir þá efnuðustu á landinu öllu. Í öðru sæti er Þorsteinn Kristjánsson forstjóri sjávar­útvegs­fyrir­tækisins Eskju á Eskifirði. Hann er með 358 milljónir í árstekjur, þar af 47 milljónir í fjármagns­tekjur og vermir 83. sætið yfir þá tekju­hæstu á landinu öllu.

Kona vermir þriðja sætið, en það er Jóna Bryndís Eysteins­dóttir, en hún rekur meðal annars líkamsræktarstöð ásamt því að vera tengd öðrum fyrirtækja­rekstri á Austur­landi.

Í fjórða sætinu er annar starfs­maður Eskju, það er framkvæmda­stjóri fjármála- og rekstrar­sviðs fyrir­tækisins, Páll Snorrason, með 180 milljónir króna. Sigþór Arnar Halldórsson í Múlaþingi er skráður í fimmta sætinu yfir þá tekju­hæstu á Austur­landi. Sá er fæddur 1963 …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár