Skattakóngur Skagafjarðar vill meira til nærsamfélagsins

Gunnar Þór Gestsson, sem seldi fyr­ir­tækið sitt til Origo í fyrra, segir það vanda­mál að fjár­magnstekju­skattur og skattar á fyr­ir­tæki renni nær ein­göngu til rík­is­ins en ekki sveit­ar­fé­laga.

Seldi fyrirtækið sitt
Seldi fyr­ir­tækið sitt Gunnar, fyrir miðju, gekk til liðs við teymi Origo við söl­una á Kappa. Mynd: Aðsend

Gunnar Þór Gestsson, stofn­andi hug­bún­að­ar­ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Kappa, er skatta­kóngur í Skaga­firði þetta árið og er í 48. sæti á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar.

Árs­tekjur Gunnars námu tæpum 457 millj­ónum króna og greiddi hann tæpar 95 millj­ónir í fjár­magnstekju­skatt.

Tilkynnt var um kaup Origo á Kappa í októ­ber í fyrra en fyr­ir­tækið hefur sér­hæft sig í inn­leið­ingu Microsoft Business Central, nýj­ustu kyn­slóð við­skipta­kerfa Microsoft. Origo hefur lagt áherslu á að styðja fyr­ir­tæki og stofn­anir í hag­nýt­ingu Microsoft-lausna og voru kaupin liður í að fram­fylgja þeirri stefnu, að því er sagði í frétta­til­kynn­ingu.

Gunnar gekk til liðs við Origo með kaup­unum og í sam­tali við Heim­ild­ina segir hann margt spenn­andi í gangi á nýjum vett­vangi. Þá gekk teymi Microsoft-sér­fræð­inga Kappa til liðs við Origo við söl­una en mark­miðið var að dýpka hæfni félags­ins til að veita við­skipta­vinum sínum ráð­gjöf og þjón­ustu þegar kemur að inn­leið­ingu fjár­hags­kerfa.

„Ég er stoltur starfs­maður …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár