Seldu Ljóma smjörlíki og Ömmu flatkökur og ætla í golf

Guð­jón Rún­ars­son, stofn­andi Kjarna­vara og skattakóng­ur í Kópa­vogi, seldi fyr­ir­tæk­ið sitt til Öl­gerð­ar­inn­ar í fyrra. Vil­hjálm­ur Þor­láks­son, stofn­andi Gæða­bakst­urs, gerði hið sama. Báð­ir fylgja rekstr­in­um eft­ir á nýj­um vett­vangi en stefna svo á að setj­ast í helg­an stein.

Seldu Ljóma smjörlíki og Ömmu flatkökur og ætla í golf
Kjarnavörur og Gæðabakstur Bæði fyrirtækin voru seld Ölgerðinni í fyrra. Mynd: Golli

Fjórði tekjuhæsti skattgreiðandi Íslands í fyrra var Guðjón Rúnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Kjarnavara. Árstekjur hans upp á 1.550 milljónir króna, sem að stórum hluta eru fjármagnstekjur, gera hann að skattakóngi í Kópavogi.

Í samtali við Heimildina segir Guðjón að fjármagnstekjurnar séu tilkomnar vegna sölu hans á Kjarnavörum til Ölgerðarinnar. „Það er ekkert öðruvísi,“ segir hann. „Þetta datt ekki af himnum ofan neitt.“

Guðjón, sem nú er 69 ára, stofnaði Kjarnavörur ásamt fleirum árið 1989. „Ég byggði þetta upp frá engu, frá núlli, eða sennilega mínus þegar maður byrjaði,“ segir hann.

„Ég byggði þetta upp frá engu, frá núlli, eða sennilega mínus“
Guðjón Rúnarsson
stofnandi og framkvæmdastjóri Kjarnavara

Aðspurður hvort reynt hafi á í rekstrinum í upphafi segist hann ekki muna eftir því. „Aldrei í mínum huga þó eflaust hafi það verið þannig,“ segir hann. „Annars hefði maður ekki haldið áfram.“

Tilkynnt var um kaup Ölgerðarinnar á Kjarnavörum í febrúar …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár