Seldu fjöldskylduútgerð fyrir tvo milljarða í „fjandsamlegu umhverfi“

Fjöl­skyldu­út­gerð á Árskógs­sandi var seld til Húsa­víkur með tveimur bátum og kvóta í byrjun árs 2025. Fyrri eig­endur eru ofar­lega á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar, en fram­kvæmda­stjóri sagði ástæðu söl­unnar fjand­sam­legt rekstr­ar­um­hverfi smærri útgerða og stefnu nýmynd­aðrar rík­is­stjórnar.

Seldu fjöldskylduútgerð fyrir tvo milljarða í „fjandsamlegu umhverfi“
Eigendur Sólrúnar Haraldur Ólafsson, Kristján Freyr Pét­urs­son, Ólafur Sig­urðs­son, Bára Hösk­ulds­dóttir, Pétur Sig­urðs­son og Svavar Sig­urðs­son. Mynd: Sindri Svan Ólafsson / isat.is

Bára Hösk­ulds­dóttir, fyrrum eig­andi útgerð­ar­fé­lags­ins Sólrúnar á Árskógs­sandi, situr í 17. sæti á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár og er efst skatt­greið­enda í Dal­vík­ur­byggð.

GPG Seafood ehf. á Húsavík keypti félagið í fyrra og með því bát­ana Sólrúnu EA 151 og Særúnu EA 251 auk rúm­lega 500 tonna kvóta.

Kaupverð var ekki gefið upp en sam­kvæmt árs­reikn­ingi GPG Seafood greiddi félagið tæpa 2,3 millj­arða í fyrra fyrir eign­ar­hluta í dótt­ur­fé­lögum. Það stemmir ágæt­lega við þær fjár­magnstekjur sem Bára og aðrir fyrri eig­endur Sólrúnar gáfu upp í fyrra.

Bára og Pétur Sig­urðs­son, eig­in­maður hennar og fram­kvæmda­stjóri Sólrúnar, áttu sam­tals 35,6% hlut í Sólrúnu sem rekið hafði verið af fjöl­skyld­unni í 63 ár. Pétur er ekki á list­anum og gera má því ráð fyrir að sam­eig­in­legar fjár­magnstekjur þeirra hjóna hafi verið skráðar á Báru. Árs­tekjur hennar voru 822 millj­ónir króna í fyrra.

Einn með­eig­enda hjón­anna í Sólrúnu og …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MMG
    Magnús Mörður Guðbjörnsson skrifaði
    Gott að getta kennt Ríkisstjórnin um, til að græða á því sem við landsmenn eiga, fiskinn í sjónum.
    Lög um stjórn fiskveiða
    I. kafli. Almenn ákvæði.
    1. gr.
    Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og
    hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu
    og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
    2
  • KB
    Kristinn Björnsson skrifaði
    Miðað við þetta væl og skæl, hver var svona vitlaus að kaupa þetta fyrir næstum tvo og hálfan milljarð? Hér þarf fréttamaðurinn að gera betur.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár