„Lífið snýst ekki bara um frí“

Erik Jensen seldi Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga slát­ur­húsið sitt í fyrra. Fjöl­skyldan vann frá morgni til kvölds, sjö daga vik­unnar, og því mikil við­brigði að selja fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið og vöru­merki þess, B. Jensen. „Það er skrítið að sjá ekki nafnið sitt lengur,“ segir Erik.

„Lífið snýst ekki bara um frí“

„Ég veit ekki um neinn sem hefur dáið úr vinnu,“ segir Erik Jensen, fyrrum eig­andi B. Jensen, sem er í 40. sæti Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár og er sá þriðji tekju­hæsti á Akureyri.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga keypti B. Jensen í fyrra og færði rekst­ur­inn inn í dótt­ur­fé­lag sitt, Kjarna­fæði-Norð­lenska. Með kaup­unum eru bæði stór­gripa­slát­ur­húsin í Eyja­firði komin í hendur Kaup­fé­lags­ins.

B. Jensen var fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki, stofnað árið 1968 af hjón­unum Benny Albert Jensen og Jónínu Sig­ur­björgu Guð­jóns­dóttur. Erik, sonur þeirra hjóna, og eig­in­kona hans, Ingi­björg Stella Bjarna­dóttir, ráku fyr­ir­tækið ásamt börnum sínum þar til í fyrra. Rekst­ur­inn er við Lóns­bakka í Hörg­ár­sveit, þar sem hann hefur verið alla tíð, og inni­heldur slát­ur­hús, kjöt­vinnslu og verslun á staðnum.

„Við erum bara að setj­ast í helgan stein,“ segir Erik, en hann var sjö ára gam­all þegar for­eldrar hans stofn­uðu rekst­ur­inn. „Auðvitað er rosa sárt að skilja við svona. En það kemur …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Mikið sem ég sakna alls sem hægt var að kaupa hjá B. Jensen og veit að svo er um marga fleiri. Ég vonaði að nýji eigandinn héldi áfram að framleiða þessar vörur en svo virðist ekki vera.
    1
  • Guðni Guðmundsson skrifaði
    Hvað með alla þrælana sem hafa drepist við vinnu, eða bara nútíma farandverkamenn sem látast úr vosbúð eða slysum. Mikið af Íslendingum af eldri kynslóðinni var vanalega búið á sál og líkama upp úr fertugu, en dröslaðist samt áfram. Það er rómantískt að sjá vinnu sem tilgang lífsins, en fyrir flesta er vinna bara eithvað sem fólk gerir til að lifa af, og sumir lifa af rétt svo...
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár