Fjárfestir í foreldrahúsum

Markús Máni Skúlason er 24 ára og því yngsti karl­mað­ur­inn á hátekju­list­anum í ár. Hann byrj­aði að fjár­festa 18 ára og segir að á yngri árunum sé mik­il­vægt að „vera dug­legur að end­ur­fjár­festa“ og ekki eyða því sem maður hefur safnað.

Fjárfestir í foreldrahúsum
Yngstur Markús er 24 ára og hefur gengið vel að fjár­festa. Mynd: Arion banki

„Það er bara gaman og kemur smá á óvart,“ segir hinn 24 ára Markús Máni Skúlason þegar blaða­maður tjáir honum að hann sé yngsti karl­maður hátekju­list­ans í ár. „[Það er] frekar athygl­is­vert. Ég var ekki beint að gera ráð fyrir því.“ 

Markús er fæddur árið 2002 og er með 50.673.146 krónur í árs­tekjur. Hann prýðir því 1.768. sæti list­ans.

„Þetta er sem sagt frá hluta­bréfa­við­skiptum. Ég hef haft áhuga á þeim í mjög langan tíma og hef verið að fjár­festa síðan ég var 18 ára. Það hefur gengið ágæt­lega,“ útskýrir hann. Markús byrj­aði fjár­fest­inga­feril sinn á því að nota upp­safn­aðan sparnað frá æsku- og ung­lings­ár­unum en í dag starfar hann sem sér­fræð­ingur við hluta­bréfa­grein­ingu hjá Arion banka. „Þetta er mitt helsta áhuga­mál,“ lýsir hann. Spurður hvaðan fjár­mála­á­hug­inn sé sprott­inn seg­ist Markús ekki viss. Í raun telji hann fjár­fest­ingar helst vera góða leið „til þess að græða pen­ing, ávaxta og spara“. …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Petrína Karlsdóttir skrifaði
    hvernig er þessi hátekjulisti valinn, er fólk valið af handahófi?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár