Sveitarstjóri með 752 milljónir í árstekjur seldi bát og kvóta

Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir, sveit­ar­stjóri Dal­vík­ur­byggðar, er í 20. sæti Hátekju­list­ans í ár. Hún og mað­ur­inn hennar seldu bát sem gerður var út frá Tálkna­firði til Ísa­fjarðar. Verðmæti kvót­ans var áætlað vel yfir hálfan millj­arð.

Sveitarstjóri með 752 milljónir í árstekjur seldi bát og kvóta
Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir Sveit­ar­stjóri Dal­vík­ur­byggðar átti útgerð­ar­fé­lagið Stegla ehf. ásamt eig­in­manni sínum.

Eyrún Ingi­björg Sig­þórs­dóttir, sveit­ar­stjóri Dal­vík­ur­byggðar, er sá ein­stak­lingur af sviði stjórn­mál­anna sem náði efst á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár. Árs­tekjur hennar námu tæpum 752 millj­ónum króna í fyrra en megnið af því voru fjár­magnstekjur.

Í sam­tali við Heim­ild­ina útskýrir hún að tekj­urnar árið 2025 hafi verið óvenju­legar þar sem hún og mað­ur­inn hennar, Tryggvi Ársæls­son, hafi selt króka­afla­marks­bát­inn Sæla BA 333, sem nú heitir Sæli ÍS 268, til Ísa­fjarðar. Báturinn var áður gerður út frá Tálkna­firði þar sem hjónin höfðu stundað útgerð frá 1991.

„Við seldum hann í októ­ber, nóv­em­ber í fyrra,“ segir Eyrún. „Ég er trú­lega tekju­hærri í launum en mað­ur­inn minn og þess vegna eru fjár­magnstekj­urnar skráðar á mig.“

Í frétt BB um söl­una kemur fram að kaup­and­inn hafi verið Þórður Emil Sig­ur­vins­son frá Suð­ur­eyri, búsettur á Ísafirði, en til­kynnt var um eig­enda­skiptin þann 7. nóv­em­ber. Þórður kom fyrir að útgerð fjög­urra ann­arra báta.

Sæli BA 333 …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þóra Gunnarsdóttir skrifaði
    Þetta er allt til fyrirmyndar. Blessuð konan á þetta skilið og meir en það. Hvaða öfund er þetta og frekja.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Framsalið átti aldrei að eiga sér stað !
    Því réði Halldór Ásgrímsson. Þessum óhugnaði verður að breyta
    og hefði átt að gerast fyrir löngu.
    3
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Óveiddur fiskur í sjónum , er úr auðlind þjóðarinnar , er það ekki ? Hvernig væri að okkur væri afhent eign okkar, fyrst sægreifaklíkan kom í veg fyrir að við getum rætt við ESB ?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár