AGS varar við verðtryggingu en er með tvíbent skilaboð um evru

Al­þjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn legg­ur til að Ís­lend­ing­ar ræði kjara­mál upp á nýtt og var­ar við verð­trygg­ing­unni, sem geti gert verð­bólgu þráláta. Um­bæt­ur séu nauð­syn­leg­ar, hvort sem evra verði tek­in upp eða ekki.

AGS varar við verðtryggingu en er með tvíbent skilaboð um evru
Ársfundur Seðlabanka Íslands Gangi Ísland inn í Evrópusambandið getur það unnið að upptöku evru, sem myndi leiða til þess að stýrivextir yrðu ákveðnir hjá Evrópska Seðlabankanum (ECB) en ekki Seðlabanka Íslands. Mynd: Golli

Ísland hefur nú þegar tekið stór skref sem þarf til þess að taka upp evruna, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Í nýrri ársskýrslu sjóðsins um Ísland er bent á kosti og galla upptöku evru og varað við því að verðtrygging í íslensku efnaghagslífi geti viðhaldið verðbólgu.

Í mati sjóðsins kemur fram að það „kann að vera þörf á“ meiri vaxtahækkunum „í nálægri framtíð“, ekki síst ef forsendur kjarasamninga bresta með því að verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst. Það virðist óumflýjanlegt, en verðbólga er nú 5,3% og hafa greiningadeildir spáð svipaðri verðbólgu áfram.

Viðvörunarorð um verðtryggingu

Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kemur fram að útbreiðsla verðtryggðra lána dragi úr áhrifum stýrivaxtahækkana, en þau voru 54% húsnæðislána við vinnslu skýrslunnar.

„Margir samningar á Íslandi eru tengdir verðbólgu. Þetta á til dæmis við um leigu, veituþjónustu, opinber innkaup, margar bætur, kjarasamninga með sérstökum verðbólguviðmiðum, sem og húsnæðislán,“ segir í skýrslunni. „Þetta gæti gert verðbólgu …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þóra Gunnarsdóttir skrifaði
    AGS kveður verðtryggingu valda verðbólgu. En það hafa allir vitað lengi.
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Þetta er varfærnislega orðað. Hin mikla útbreiðsla verðtryggingar í íslensku efnahagslífi getur ekki aðeins gert verðbólgu þrálátari en ella, það er staðreynd að húna gerir það. Ætli verði kannski hlustað á skilaboð um nauðsyn afnáms verðtryggingar þegar þau koma nú erlendis frá?

    Lausnin er sáraeinföld og hefur legið fyrir í mörg ár og hefur ekkert að gera með það hvað gjaldmiðilinn heitir því verðtrygging er ekki skrifuð á peningaseðla heldur lánssamninga:
    https://www.althingi.is/altext/154/s/0109.html
    https://www.althingi.is/altext/155/s/0128.html

    Viljið þið kannski hlusta núna þegar skilaboðin koma frá útlöndum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár