Kristrún segir sjálfstæðið ekki sjálfgefið í dag

For­sæt­is­ráð­herra við­ur­kennir áhyggjur af Banda­ríkj­unum.

Kristrún segir sjálfstæðið ekki sjálfgefið í dag
Kristrún Frosta­dóttir Hafði áður lýst því að treysta mætti Banda­ríkj­unum, en gengst nú við áhyggjum Íslend­inga af talsmáta Banda­ríkja­for­seta. Mynd: Golli

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir það „risa­stórt vanda­mál“ hvernig talað er um Grænland og að Íslend­ingar hafi af því miklar áhyggjur. Það sé góður tími til að ganga í Evr­ópu­sam­bandið.

Kristrún er í við­tali í stjórn­mála­hlað­varp­inu The Rest is Politics undir yfir­skrift­inni: Er óreiða Trumps að ýta Íslandi í Evr­ópu­sam­bandið?

„Það er ekki gefið í dag að við höfum rödd og að fólk hlusti á okkur,“ segir Kristrún. „Það er ekki sjálf­gefið að vera sjálf­stætt land, jafn­vel í heim­inum í dag.“

Í við­tali við Heim­ild­ina í jan­úar síð­ast­liðnum sagði Kristrún hins vegar: „Við getum treyst á Banda­ríkin.“

Athygli vakti um helg­ina að þing­maður Mið­flokks­ins, Ingi­björg Dav­íðs­dóttir, sagði í mynd­bandi sem dreift var af flokknum að það væri „mjög miður“ að íslensk stjórn­völd hefðu ekki fundað með Banda­ríkj­unum um Evr­ópu­sam­bands­að­ild­ina og kannað hvaða áhrif hún gæti haft á varn­ar­samn­ing við Banda­ríkin, sem væri grunn­for­senda þess að Ísland yrði varið.

„Allt þetta Græn­lands­mál vekur áhyggjur hjá fólki,“ segir Kristrún. „Þetta er risa­stórt vanda­mál. Það er mál að það skuli vera leið­togar í hinum frjálsa heimi sem tala svona. Og ég veit að Íslend­ingar hafa miklar áhyggjur af þessu. Ég held að þetta sé góður tími fyrir Ísland til að ganga í Evr­ópu­sam­bandið, vegna stöð­unnar í alþjóða­stjórn­málum sem við erum í.“

Þá lýsir Kristrún því að Ísland sumir myndu segja að „Ísland væri 75 pró­sent í Evr­ópu­sam­band­inu“ í gegnum samn­ing­inn um Evrópska efna­hags­svæðið.

„Við erum eitt af fáum löndum sem hefur aldrei séð samn­ing um að ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Við höfum aldrei haft atkvæða­greiðslu um þetta. Fólk hefur aldrei fengið að segja sitt um hvort við göngum að fullu í Evr­ópu­sam­bandið eða ekki.“

Hún sagði að fyrri umsókn hefði komið úr erf­ið­ari stöðu fyrir Ísland.

„Við vorum á hnjánum, við vorum í fjár­hags­legu óör­yggi, sjálfs­mynd okkar var brotin og þetta var séð sem leið til að laga öll vanda­mál okkar á skömmum tíma. Og svo fengum við nýja rík­is­stjórn 2013 og við­ræð­urnar fjör­uðu út. Á þeim tíma var alltaf talað um að ef við myndum end­ur­opna við­ræð­urnar, myndum við fá umboð til að gera það.“

Þá við­ur­kenndi hún að við­ræður „kosti mikla orku“ og „taki súr­efni úr stjórn­kerf­inu“, en sagði þjóð­ar­at­kvæðið snú­ast um við­ræð­urnar sem slíkar, frekar en aðild.

Viðtalið má heyra hér.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Við erum eitt af fáum löndum sem hefur aldrei séð samning um að ganga í Evrópusambandið."
    Rangt, fengum hann á íslensku 2012: https://www.eeas.europa.eu/node/18060_is

    "Við höfum aldrei haft atkvæðagreiðslu um þetta. Fólk hefur aldrei fengið að segja sitt um hvort við göngum að fullu í Evrópusambandið eða ekki."
    Tæknilega rétt en efnislega misvísandi. Árið 2011 höfnuðum við ríkisábyrgð á innlánatryggingum banka, sem ESB gerði svo að skilyrði fyrir aðildarríki árið 2014 og útilokaði þar með aðild Íslands. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla var binandi og engin ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla getur breytt því. Vissulega var ekki spurt um ESB aðild í það skiptið en engu að síður höfnuðum við atriði sem er núna orðið aðildarskilyrði ESB. Vel að merkja er það ekki meðal samningsmarkmiða ríkisstjórnarinnar að krefjast undanþágu frá þessu skilyrði og fyrir vikið verður aðeins einn lögmætur svarmöguleiki á kjörseðlinum 29. ágúst. Enginn hefur heimild til að virða niðurstöður bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu að vettugi, hvorki ríkisstjórn né kjósendur í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu, hvorki lagalega, lýðræðislega né siðferðislega. Þeim sem er tíðrætt um að þjóðin eigi að fá að ráða í "lýðræðisveislu" væri rétt að hafa í huga að við gerðum það einmitt fyrir 15 árum síðan og þann vilja sem við tjáðum þá ber að virða!
    0
    • GM
      Gretar Marinosson skrifaði
      Er Lissabon sáttmálinn "samningur um að ganga í Evrópusambandið"?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár