Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin

Þing­maður Mið­flokks­ins segir „mjög miður“ að ekki hafi verið fundað með Banda­ríkj­unum um afstöðu þeirra til aðildar Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu.

Vill bera aðild Íslands að ESB undir Bandaríkin
Ingi­björg Dav­íðs­dóttir Þingkona Mið­flokks­ins starf­aði í utan­rík­is­þjón­ust­unni í ald­ar­fjórð­ung.

Ingi­björg Dav­íðs­dóttir, þing­kona Mið­flokks­ins, segir að hver sá sem láti sér annt um öryggi Íslands muni hafna aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, enda sé óljóst hvernig Banda­ríkin taki slíkri aðild. Það sé „mjög miður“ að rík­is­stjórn Íslands hafi ekki átt fundi með Banda­ríkj­unum um hugs­an­lega aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu.

Í mynd­bandi sem Ingi­björg og Mið­flokk­ur­inn sendu frá sér á sam­fé­lags­miðlum færir hún rök fyrir því að rík­is­stjórnin ætti að funda með Banda­ríkj­unum um málið. Hún vísar til 25 ára reynslu sinnar í utan­rík­is­þjón­ust­unni.

„Því miður hafa íslensk stjórn­völd van­rækt sam­skipti sín við Banda­ríkin. Og það er mjög miður að þau hafi ekki sest niður með Banda­ríkj­unum, meðal ann­ars til þess að ræða til dæmis hvað ger­ist með varn­ar­samn­ing Íslands ef Ísland ákveður að ganga í Evr­ópu­sam­bandið,“ segir hún.

Þannig segir hún að sam­ráð við Banda­ríkin um aðild Íslands að ESB sé „eitt­hvað sem er ekki hægt að skoða eftir …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (14)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Þetta er furðuleg afstaða svo ekki sé meira sagt. Vill þessi kona að við verðum 51. fylki Bandaríkjanna? Skil ekki alveg hvað hún er að vilja á Íslandi fyrst hún er BNA svona fylgispök.
    5
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Af hverju? Bandaríkin bera ekki virðingu fyrir okkur.
    5
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Það er athyglisvert að þetta kemur frá fyrrverandi starfsmanni utanríkisþjónustunnar. Þetta vekur upp þá spurningu hvort almennt séu mál af þessu tagi borin upp við Bandaríkjastjórn án þess að almenningur sé upplýstur um það.

    En svo er hitt að grundvallar skylda ríksvalds hvers land er að tryggja öryggi landsins. Við eitt þjóða NATO höfum samið við Bandaríkin að sjá algerlega um þennan grundvallar þátt. Það að hafa falið öðru ríki allar landsvarnir er að hluta til fullveldisafsal og því í sjálfu sér ekki kannski óeðlilegt sjónarmið að Bandaríkin væru höfð í samráði í utanríkismálum.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Miðflokkurinn virðist vera samansafn af vitleusingum
    7
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Iceland doesn't need security guarantees from the US but against the US!
    5
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Ingibjörg Davíðsdóttir viltu ekki bara flytja til Bandaríkjanna og láta okkur hin í friði.
    16
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Furðuleg nálgun, svo ekki sé meira sagt. Er fullveldi og sjálfstæði Íslands þá ekki meira en svo, eftir allt saman, að mati Ingibjargar, að það sé háð duttlungum Bandaríkjaforseta? Sé þetta rétt metið, er það þá ekki enn ein ástæða til að treysta sambandið við ESB?
    18
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Þarf ekki meira en gripsvit til þess að komast í utanríkisþjónustuna? Það er ekkert verið að kjósa um inngöngu í Evrópusambandið í ágúst, það er verið að kjósa um áframhaldandi viðræður um aðild. Samningurinn verður síðan borinn undir þjóðina til samþykktar eða synjunar. Þá ætti að vera hægt að skoða kosti og galla þess sem í honum stendur. Að segja nei í ágúst er ein mesta forheimska sem hægt er að hugsa sér. Það er ekki verið að greiða atkvæði um að ganga í ESB, heldur hvort við eigum að halda áfram viðræðum, svo það sé sagt einu sinni enn.
    18
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Í fjórtán ár hefur verið hægt að skoða kosti og galla þess sem stendur í samningnum á íslensku: https://www.eeas.europa.eu/node/18060_is
      Ert þú búinn að því? Ef ekki, munt þú nokkuð frekar nenna að lesa eitthvað meira?
      -4
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Þegar maður reynir að hjálpa fólki sem segist ætla að kjósa "já" til að "sjá" (hvað er í pakkanum") með því að benda því á nákvæmlega hvað það þarf að sjá og hvar það getur séð það, er alveg stórmerkilegt hvað það vekur oft mikil neikvæð viðbrögð frá þessu sama fólki. Það hlýtur að verða sálfélagslegt rannsóknarefni hvers vegna jafn margt fólk og raun ber vitni getur heimtað eitthvað en verður svo eins og snúið roð í hundskjafti þegar því er beinlínis rétt upp í hendurnar nákvæmlega það sem það heimtaði.

      Haldi sama mynstrið er ekki útilokað að þessi athugasemd veki álíka neikvæð viðbrögð.
      -2
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Verður ekki mikið vitlausara
    13
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Þetta er eitthvað það furðulegasta sem ég hef séð í tengslum við þetta málefni. Telur Miðflokkurinn sem sé að við verðum að spyrja Trump? Erum við fullvalda í þeirra huga?
    18
  • ÓRÁ
    Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
    Það er spurning hvort Ingibjörg telji okkur ekki vera fullvalda þjóð? Afhverju ættum við ekki líka að bera þetta undir Rússa eða Kínverja? Er ekki bara í lagi að treysta dómgreind þjóðarinnar?
    17
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár