Klukkutími með Kristrúnu: Atvinnulífið flutti inn stéttaskiptingu

Kristrún Frosta­dóttir segir inn­flutta stétta­skipt­ingu hafa skapað vanda á Íslandi. Þá segir hún fram­göngu Flokks fólks­ins hafa verið klaufa­lega á köflum, en flokk­ur­inn hafi staðið sig vel í sínum ráðu­neytum.

<span>Klukkutími með Kristrúnu:</span> Atvinnulífið flutti inn stéttaskiptingu

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra, segir inn­flutta stétta­skipt­ingu í íslensku sam­fé­lagi ekki góða þróun og það þurfi að bæta úr þeim vanda. Hún segir Flokk fólks­ins öðru­vísi stjórn­mála­flokk en almenn­ingur er vanur og veltir fyrir sér hvort upp­á­komur honum tengdum ein­kenn­ist af klaufa­skap. Þó sé slíkt stjórn­mála­afl jákvætt, þar sé talað tæpitungu­laust og flokk­ur­inn verji hóp sem hafi veika rödd í sam­fé­lag­inu. Þá segir Kristrún að það sé ekki óeðli­legt að kalla eftir end­ur­nýjun innan borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins en þrá­látur orðrómur hefur verið um að for­sæt­is­ráð­herr­ann vinni leynt og ljóst að því að end­ur­nýja borg­ar­stjórn­ar­flokk Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Heim­ildin sett­ist niður með for­sæt­is­ráð­herr­anum og byrj­aði á því að spyrja um mál mál­anna, öryggi Íslands í tengslum við hand­töku banda­rískra yfir­valda á ein­ræð­is­herr­anum Nicolás Maduro. Þar voru alþjóða­lög brotin og í kjöl­farið var því hótað að Grænland væri næst í röð­inni, ógn sem bein­ist …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    I wish I could share her optimism but reality dictates otherwise!
    0
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Kristrún er mjög klár kona, en, eins og flest pólitískt fólk, ansi naív og óupplýst varðandi utanríkismál. Bandaríkin hefur nefnilega mjög slæmt alþjóðlegt orðspor fyrir því að efna orðlofið sitt, og núverandi forseti þess hefur oft sagt hvað honum sé alveg sama hvaða áhrif utanríkisstefnan hans mætti hafa á öðrum löndum, á NATO, á Evrópu, og á mannkyni almennt.
    Ég kann vel við þá bandaríkjamenn sem ég þekki personulega, en Washingtonborg í dag er farin úr öllum böndum.
    1
  • Kári Jónsson skrifaði
    Ágætt samtal við Kristrúnu, það verður samt að koma skýrar fram hvar formaðurinn sér/finnur samhljóm með málflutningi xM, mun xS slá af mannúð og mildi gagnvart fólki í neyð, mun xM sýna meiri mannúð og mildi ? Er hægt að veita hælisleitendum atvinnuleyfi á biðtímanum eftir samþykki/synjun á dvalarleyfi, gætu xS og xM sameinast um það ? Getur xM hætt að tala inní sundrun og fordóma = "við-þið" málflutning ? Geta xS-xM sameinast um að hætta við brottfarastöð/fangelsi ? Geta xS og xM sameinast um að endurskoða starfshætti og fjölga félagsráðgjöfum/fræðingum útlendingastofnunar ? Samfélagið okkar (400.000) hefur ekki efni á því siðferðislega að vera með málflutning sem elur á sundrun þá hrynur samfélagið okkar, það er bara spurning hvort það tekur 5ár eða 10ár við verðum að tala fyrir jafnrétti fyrir alla og mannréttindi fyrir alla, þannig eignumst góða framtíð.
    1
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Því miður er svarið við spurningunni 'getum við treyst Bandaríkjunum' nei. Líttu á 6. janúar 2021: Ræningjarnir sem drápu lögreglumenn í Hvíta húsinu hafa nú verið náðaðir og voru viðstaddir „friðsamlega“ mótmælagöngu 6. janúar 2026. Líttu á nýlega morðið á Renee Good í Minneapolis, og kannski enn mikilvægara, tilraun stjórnvalda til að lýsa henni sem innlendum hryðjuverkamanni frekar en mömmu sem hafði rétt skilað barni sínu í skólann og var á leið heim. Eru þetta fólkið sem þú vilt treysta? Sem bandarískur ríkisborgari sjálfur (og því vilja sumir kannski ekki heldur treysta orðum mínum) get ég sagt að landið er að vera rifið í sundur af andstæðingum og þetta eru þeir sömu og þú ert að spyrja þig hvort þú viljir treysta eða ekki. Ef svarið er ekki skýrt, gangi þér vel.
    8
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Að mörgu leyti fróðlegt viðtal. Varðandi verðbólgu og hagstjórn þá er alveg skautað fram hjá umræðu um áhrif kjarasamninga. Fram kemur þó, að hagvöxtur á mann hefur verið nánast núll síðustu ár, en ekki nefnt einu orði, að laun hafi hækkað umtalsvert, og um jafnvel 7 % á einu ári.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár