Sólveig Anna sammála atvinnurekendum um ESB

Formaður Eflingar seg­ist kjósa gegn aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Atvinnu­rek­endur eru sam­mála henni, en laun­þegar virð­ast fremur fylgj­andi við­ræðum.

Sólveig Anna sammála atvinnurekendum um ESB
Sólveig Anna Jóns­dóttir Tekur per­sónu­lega afstöðu gegn aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst næst­kom­andi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég ætla að segja nei í ágúst­lok,“ segir Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, um afstöðu sína í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í sum­ar­lok um hvort hefja eigi á ný aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið.

Sólveig Anna lýsir þannig sömu afstöðu og Samtök atvinnu­lífs­ins og Samtök iðn­að­ar­ins.

Í færslu á Facebook í kvöld útskýrir Sólveig Anna að afstaða sín byggi á því að hafa fylgst með evru-krepp­unni sem hófst árið 2010, en hún leiddi til atvinnu­leysis í sumum aðild­ar­löndum. Hún vitnar í fræði­menn og tengir Evr­ópu­sam­bandið við áherslu á halla­lausan rík­is­rekstur ofar vel­ferð.

Tengir ESB við aðhald í ríkisrekstri og lýðræðishalla

„Líkt og Costas Lapa­vitsas hefur útskýrt með sann­fær­andi hætti eru atriði eins og halla­laus rekstur sett ofar atriðum sem hafa skil­greint sterk vel­ferð­ar­sam­fé­lög eins og það að nota rík­is­fjár­málin mark­visst til að minnka mis­skipt­ingu og tryggja hátt atvinnustig,“ segir hún.

Fylg­is­fólk Evr­ópu­sam­bands­að­ildar hefur gjarnan gagn­rýnt að …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mikilvægt væri fyrir Sólveigu að kynna sér mun betur kostina við aðild ekki síður en gallana. Ótalmörg málefni eru mun betur komið innan Evrópusambandsins m.a. vegna nútímalegra lagaumhverfi en hjá okkur. Mannréttindi, neytendavernd, félagsleg réttindi og ótalmargt fleira er betur tekið til hendinni en hjá okkur að ekki sé gleymt umhverfismálunum sem enn er litið á meir með gagnaugum gróðans en skynsemi og hófsemi. Við erum áratugum á eftir í mörgu en ýmsir gróðaaðilar hafa engan áhuga fyrir meiri virðingu hvorki fyrir vinnandi fólki né náttúrunni. Þessi mál varða okkur öll en gróðaöflin vilja engu breyta því þá þrengist að gróðamöguleikum þeirra.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár