Mörg merki eru komin fram um afdrifaríkar og örar breytingar sem munu hafa fordæmalaus áhrif á okkur öll, til góðs eða ills.
Hvort þær munu verða útópískar eða dystópískar veltur á því hvort farið verði yfir vendipunkt valdasamþjöppunar.
Mælikvarðinn til að fylgjast með er ekki olíuverð, hagvöxtur, vextir eða hlutabréfaverð, heldur virði manneskjunnar.
Eins og fjallað hefur verið um, meðal annars í New York Times í síðasta mánuði, er vaxandi meðvitund um að við erum óundirbúin undir áhrif gervigreindar á atvinnumarkað og samfélagið. Þess mikilvægara er að fylgjast með merkjunum.
Hagfræðilegt virði fólks minnkar
„Þörfin“ fyrir manneskjur þverr með innreið gervigreindar og síðar vélmenna, sem eru nú að taka stórstígum framförum.
Í síðasta mánuði náði vélmenni að slá hraðasta tíma manneskju í hálfmaraþoni í Peking í Kína og bæta tímann um tæpar tvær klukkustundir frá árinu áður.
Eftir því sem minni þörf verður fyrir mannfólk eru líkur á að …



























































Athugasemdir