Formaður bankaráðs Seðlabankans skýtur á bankastjórana

Bolli Héð­ins­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans, beindi við­kvæmri spurn­ingu til stjórn­enda við­skipta­bank­anna á árs­fundi bank­ans í dag.

Formaður bankaráðs Seðlabankans skýtur á bankastjórana
Bolli Héð­ins­son Var kjör­inn for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands í júní í fyrra. Mynd: Golli

Formaður banka­ráðs Seðla­banka Íslands, hag­fræð­ing­ur­inn Bolli Héð­ins­son, beindi sjónum að einni lyk­il­spurn­ingu hag­kerf­is­ins í fyrstu árs­fund­ar­ræðu sinni við upp­haf árs­fundar bank­ans í dag.

Bolli fjall­aði um sjálf­virkni­væð­ingu í versl­unum og bönkum, sem veldur hag­ræð­ingu í rekstri þeirra og færir verk­efnin yfir til við­skipta­vina, sem sam­kvæmt kenn­ingum hag­fræð­innar eiga að lækka verð á vöru og þjón­ustu.

Bolli benti á inn­leið­ingu sjálfs­af­greiðslu­kassa í versl­unum. „Þannig sjáum við sjálf núna um það sem starfs­fólk versl­un­ar­innar sinntu áður. Og því hægt að fækka í starfs­liði búð­anna, en við það ætti vöru­verð að hafa lækkað. Hvort það er raunin, veit ég ekki.“

Íslensku mat­vöru­keðj­urnar hafa hagn­ast í vax­andi mæli á síð­ustu árum og risið hátt í kaup­höll­inni. Þannig hefur for­stjóri Haga, sem rekur Bónus, lýsti því að með­byr sé í rekstri mat­vöru­versl­ana, en á sama tíma hefur verð­lag á mat­vörum og drykk hækkað umfram almenna verð­bólgu, eða um 5,8% á einu ári.

Beindi spurningu til bankastjóra

Bolli nýtti sér nær­veru banka­stjóra stóru við­skipta­bank­anna og spurði sam­bæri­lega um rekstur bank­anna, en þeir högn­uð­ust sam­eig­in­lega um nærri 94 millj­arða króna í fyrra.

„Einu sinni fyllt­ust afgreiðslu­salir bank­anna um hver mán­að­ar­mót þegar við­skipta­vinir mættu með gíró­seðl­anna til að standa í skilum fyrir eindaga. Nú eru afgreiðslu­sal­irnir nær horfnir og það sem meira er, við­skipta­vin­irnir sjá sjálfir um að greiða gíró­seðl­ana, eða ígildi þeirra, heima hjá sér við far­tölv­una eða snjall­síma,“ sagði Bolli.

„Af því að hér eru margir stjórn­endur við­skipta­bank­anna, þá spyr ég: Hefur sú fækkun starfs­manna sem óhjá­kvæmi­lega hefur orðið með því að við­skipta­vinir bank­anna hafa sjálfir tekið að sér að sinna þeim störfum, sem áður voru innan þeirra, hefur þessum sparn­aði í rekstri verið veitt til við­skipta­vina þeirra? Annað hvort í formi lægri gjalda eða hærri inn­láns­vaxta.“

Lands­bank­inn ákvað nýverið að borga 35 millj­arða króna í arð af starf­semi sinni, en hagn­aður bank­ans í fyrra nam 104 millj­ónum króna á hverjum ein­asta degi árs­ins. Sá arður rennur þó í rík­is­sjóð.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra boð­aði í ræðu sinni á fund­inum að rík­is­stjórnin myndi kynna efna­hags­að­gerðir á morgun.

Þá fór Ásgeir Jónsson aðalseðla­banka­stjóri yfir sögu þjóð­ar­sátt­ar­innar, verð­bólgu­mark­miða og launa­hækk­ana almenn­ings. Ásgeir benti á að verð­bólga hefði verið sú sama á Íslandi og í Evrópu eftir covid-far­ald­ur­inn, en að laun­þegar ann­ars staðar í Evrópu hefðu tekið á sig kaup­mátt­arrýrnun, ólíkt Íslend­ingum sem hefðu hækkað laun meira. Hann gagn­rýndi hót­anir for­sprakka verka­lýðs­fé­lag­anna, sem hefðu komið í veg fyrir lækkun kaup­máttar og orðið olía á verð­bólgu­bál.

Ásgeir sagði að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans myndi „að óbreyttu“ þurfa að hækka stýri­vexti meira, eftir að hafa hækkað þá um 0,25% í mars.

Kjósa
71
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MSB
    Margrét S. Björnsdóttir skrifaði
    Bolli góður-
    1
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Vitaskuld er þetta „skófluskrílnum” að kenna.
    Það hefur alltaf verið þannig. Þetta veit Kaupþings-klappstýran fyrrverandi mæta vel.
    4
    • MB
      Magnús Bjarnason skrifaði
      Klappstýrurnar eru margar. Hvaða klappstýru hefur þú í huga?
      -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár