Trump hótar Spánverjum

„Við viljum ekk­ert með Spán hafa,“ segir Donald Trump Banda­ríkja­for­seti.

Trump hótar Spánverjum
Fundur Merz og Trumps Friedriech Merz, kansl­ari Þýska­land, hélt til Banda­ríkj­anna í dag til fundar við Donald Trump, sem lýsti óánægju sinni með önnur Evr­ópu­ríki vegna sam­starfstregðu við árásir á Íran. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hót­aði í dag að slíta við­skipta­sam­bandi við Spán, eftir að vinstri stjórn lands­ins neit­aði að leyfa banda­rískum flug­vélum að nota bæki­stöðvar sínar til að ráð­ast á Íran og mót­mælti auknum fram­lögum til varn­ar­mála innan NATO.

„Spánn hefur verið hræði­legur,“ sagði Trump við frétta­menn þegar hann hitti Friedrich Merz, kansl­ara Þýska­lands í Hvíta hús­inu.

„Við ætlum að slíta öllum við­skiptum við Spán. Við viljum ekk­ert með Spán hafa.“

Trump benti á að Pedro Sanchez, for­sæt­is­ráð­herra Spánar, hefði opin­ber­lega neitað að taka þátt í lof­orði banda­lags­þjóða NATO um að auka útgjöld til varn­ar­mála í fimm pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, en það eru þau fram­lög til varn­ar­mála sem Trump hefur þrýst á um og segir Banda­ríkin bera of miklar byrðar.

Óljóst er hvaða vald Trump hefði til að „slíta“ við­skiptum við Spán, eftir að Hæsti­réttur ógilti notkun hans á neyð­ar­heim­ildum til að leggja handa­hófs­kennda tolla á önnur lönd.

Jose Manuel Albares, utan­rík­is­ráð­herra Spánar, sagði fyrr að rík­is­stjórn hans myndi aðeins leyfa notkun flota­stöðv­ar­innar í Rota og Moron-her­stöðv­ar­innar fyrir aðgerðir sem sam­ræmd­ust sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ósáttur við Breta vegna „heimskulegu eyjunnar“

Trump sagð­ist líka vera óánægður með Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sem hefur ekki tekið þátt í árás Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran en leyfði þó banda­rískum her­sveitum að nota breskar her­stöðvar.

„Ég er ekki ánægður með Bretland,“ sagði Trump.

„Það tók okkur þrjá, fjóra daga að finna út hvar við gætum lent,“ sagði Trump.

Bretland, sem hefur verið traustur banda­maður Banda­ríkj­anna í báðum heims­styrj­öld­unum og í stríð­unum í Írak og Afganistan, ákvað að taka ekki þátt í árásinni á Íran sem Trump hóf ásamt Ísrael á laug­ar­dag.

Starmer sagði að banda­rískar orr­ustu­þotur gætu notað tvær breskar her­stöðvar í „sér­stökum og tak­mörk­uðum varn­ar­til­gangi“ – aðra í Gloucestershire í vest­ur­hluta Englands og hina í sam­eig­in­legri her­stöð Bret­lands og Banda­ríkj­anna á Diego Garcia í Ind­lands­hafi.

Starmer sagði að Banda­ríkj­unum væri ekki heim­ilt að nota breskar her­stöðvar á Kýpur, en ein þeirra varð fyrir árás dróna af íranskri gerð.

„Það tók okkur þrjá, fjóra daga að finna út hvar við gætum lent. Það hefði verið mun þægi­legra að lenda þar, í stað þess að fljúga marga auka­tíma,“ sagði Trump og virt­ist vísa til Diego Garcia.

Trump hefur skipt ítrekað um skoðun en á end­anum gagn­rýnt Starmer fyrir að sam­þykkja að skila Chagos-eyjum, þar sem Diego Garcia er og þar sem Bretar ráku íbú­ana burt, til Máritíus og leigja her­stöð­ina í stað­inn.

„Ég verð að segja að Bretland hefur verið mjög, mjög ósam­vinnu­þýtt með þessa heimsku­legu eyju sem þeir eiga,“ sagði Trump við hlið Friedrich Merz.

„Þetta er ekki Winston Churchill sem við erum að eiga við,“ sagði Trump.

Merz styður stríðið

Merz lýsti yfir stuðn­ingi við stríð Banda­ríkj­anna og Ísraels gegn Íran. Hann sagð­ist þó vona að því lyki bráð­lega, þar sem það væri að skaða heims­hag­kerfið.

„Þetta er auð­vitað að skaða hag­kerfi okkar. Þetta á við um olíu­verð og þetta á líka við um gasverð. Þess vegna von­umst við öll til þess að þessu stríði ljúki sem fyrst,“ sagði Merz við frétta­menn.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Bergljót Aðalsteinsdóttir skrifaði
    Er ekki hægt að gefa honum tindáta til að leika sér að?
    3
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Merz hefur áhyggjur af efnahagsmálunum, ekki saklausu fólki.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár