Ósátt við launahækkanir og boða meira atvinnuleysi

Seðla­bank­anum er að takast að „ýta hag­kerf­inu í kólnun“, að sögn seðla­banka­stjóra. Hann gagn­rýnir launa­hækk­anir og segir verka­lýðs­fé­lög varla geta „heimtað launa­hækk­anir“. Hins vegar jókst verð­bólgan vegna aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar.

Ósátt við launahækkanir og boða meira atvinnuleysi
Ásgeir Jónsson Hefur reglu­lega varað við áhrifum launa­hækk­ana. Mynd: Golli

Seðla­banka­stjóri gagn­rýndi í morgun launa­hækk­anir almenn­ings, í kjöl­far þess að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans, sem hann veitir for­mennsku, ákvað að halda vöxtum óbreyttum í 7,25%. Vext­irnir eru þeir hæstu í Evrópu utan stríðs­svæða og ein­ræð­is­ríkja.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri gagn­rýndi á fund­inum enn á ný launa­hækk­anir, sem hafa verið 7 til 8 pró­sent á einu ári, sam­kvæmt launa­vísi­tölu. Opin­berir starfs­menn hafa hins vegar leitt launa­hækk­an­irnar síð­ast­liðið ár.

„Enn sem komið er er eitt helsta vanda­mál pen­inga­stefn­unnar mjög heitur vinnu­mark­aður og miklar launa­hækk­anir,“ sagði Ásgeir á fundi pen­inga­stefnu­nefndar í morgun. „Einn stærsti vandi síð­ustu fjög­urra, fimm ára, er að launa­hækk­anir hafa verið miklu meiri heldur en sam­rým­ist verð­bólgu­mark­miði.“ 

Hann sagði þó að það væri „aukin kólnun á vinnu­mark­aði“. 

„Við bindum vonir við að það hægi á launa­hækk­unum, en ég meina, það datt inn fjögur pró­sent hækkun launa í byrjun jan­úar,“ bætti hann við, en í …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár