Hvert er íslenska hagkerfið að fara?

Atvinn­leysi eykst en verð­bólgan blæs aftur út. Seðla­bank­inn skýrir ákvarð­anir sínar á fundi pen­inga­stefnu­nefndar.

Hvert er íslenska hagkerfið að fara?
Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóri hefur von­ast eftir fallandi verð­bólgu með vor­inu. Mynd: Golli

Verð­bólgan hækkar og vaxta­lækk­un­ar­ferli er frestað, sam­hliða auknu atvinnu­leysi. Ástæðan fyrir því að Seðla­bank­inn hækk­aði ekki stýri­vexti, þrátt fyrir verð­bólgu­skot, er að kólnun hag­kerf­is­ins er hafin.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands skýrir á fundi sínum hvert íslenska hag­kerfið stefnir og boðar sýn á næstu aðgerðir.

Í yfir­ferð Karenar Áslaugar Vign­is­dóttur, aðal­hag­fræð­ings Seðla­bank­ans, kemur fram að kólnun er á vinnu­mark­aði og hús­næð­is­mark­aði, en hag­vaxt­ar­horfur glæð­ast lít­il­lega vegna loðnufundar.

Gistin­óttum fækk­aði og komum erlendra ferða­manna fækk­aði um 6% í fyrra, eftir fall flug­fé­lags­ins Play. Fjöldi ferða­manna var 2,3 millj­ónir eins og búist var við. Horfur eru svip­aðar fyrir árið í ár og er talið að sól­myrkvi í ágúst muni ýta undir komur.

Horfur eru betri í sjáv­ar­út­vegi eftir að loðnan fannst.

Einkaneyslan tók kipp

Sparn­að­ar­hlut­fall fer lækk­andi, en er þó hátt. Vöxtur var í bíla­kaupum, enda tóku við gjald­hækk­anir um ára­mót. Þannig var kröft­ugur vöxtur einka­neyslu í lok síð­asta árs.

Lands­fram­leiðsla jókst minna en spáð var í nóv­em­ber, einna helst vegna sam­dráttar í fjár­fest­ingu á atvinnu­vegum, en einka­neysla hífir upp hag­vöxt­inn. Hag­vöxtur virð­ist hafa verið 1,3% á árinu. Spáð er 2% hag­vexti í ár, eða 0,4% meira en áður, vegna loðn­unnar.

Launa­fólki fjölg­aði um 0,6% milli ára í nóv­em­ber, en störfum hefur lítið fjölgað. Atvinnu­leysið mæld­ist 4,2% í des­em­ber. Dregið hefur úr fjölgun íbúa á Íslandi, sem dregur um leið úr atvinnu­leysi.

Horf­urnar hafa versnað. Mælingar á fyr­ir­ætl­unum fyr­ir­tækja­stjórn­enda benda til þess að kólnun verði í ráðn­ingum. Aðeins 12% stjórn­enda telja skort vera á starfs­fólki.

„Það eru komin nokkuð skýr kóln­un­ar­merki fram á vinnu­mark­aði,“ segir Karen Áslaug Vign­is­dóttir, aðal­hag­fræð­ingur Seðla­bank­ans.

Spáð er 4,7% atvinnu­leysi á næsta ári.

Mikil hækkun matvöruverðs

„Verð­bólga hefur auk­ist skarpt á ný,“ segir Karen. „Mest áhrif hafði hækkun á verði bíla, einkum vegna breyttrar gjald­töku á nýjum bílum, en áhrif hækk­unar á mat­vöru­verði voru um 0,15 pró­sentur, tölu­verð,“ segir Karen. „Mat­vöru­verð hækkar þarna um 5,6% á milli ára og ekki verið jafn­mikil hækkun á einum mán­uði í tæpt ár“.

Verð­bólgan mæld­ist 5,2% eftir jan­ú­ar­hækk­un­ina.

„Það voru von­brigði að sjá hversu dreifðar þessar verð­hækk­anir voru á ólíka und­ir­liði,“ bætir Karen við.

Alþjóð­leg verð­bólga hefur hins vegar lækkað á ný. Verð­bólga í við­skipta­löndum var aðeins 2,3%. Búist er við rúm­lega 2% verð­bólgu á þessu ári.

Þrátt fyrir verð­hækk­anir inn­an­lands og litla verð­bólgu erlendis hefur gengi krón­unnar tekið að hækka og hefur hækkað um 3,5% á einu ári.

Launa­vísi­talan hækk­aði um 7,4% á milli ára á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra. 

Kólnun á húsnæðismarkaði

Hús­næð­is­mark­að­ur­inn kólnar. Íbúða­verð hækk­aði um 2% á milli ára, sem er raun­lækkun. Nýjar eignir hafa selst hægt og með­al­birgða­tími leng­ist. Karen segir íbúða­lána­mark­að­ur­inn vera að „fær­ast í eðli­legra horf.“ 

Verð­bólgu­vænt­ingar mark­aðs­að­ila til fimm ára eru 3,2%. Karen segir að lang­tíma­horfur verð­bólgu séu svip­aðar og í nóv­em­ber. Henni sé spáð 5% á fyrsta árs­fjórð­ungi, en síðan hjöðnun. Þannig verði verð­bólgan 3,8% í lok þessa árs og aðeins 2,7% að með­al­tali á næsta ári, sam­kvæmt spá Seðla­bank­ans sem telur sig ná verð­bólgu­mark­miði sínu árið 2028 í 2,5%.

Ekki vaxtalækkun án breytinga

Þórarinn G. Pét­urs­son vara­seðla­banka­stjóri segir þó að eitt­hvað þurfi að breyt­ast til þess að vaxta­lækkun hefj­ist á ný.

„Frekari vaxta­lækkun er slegin út af borð­inu þangað til að við sjáum ein­hverja lag­fær­ingu á verð­bólgu­horfum. Og þær hafa svo sann­ar­lega versnað. En fyrst og fremst til skemmri tíma, af því að þessi aukn­ing í verð­bólgu er til komin að mestu leyti út af breyt­ingum á opin­berum gjöldum.“

Hann sagði tíma­setn­ing­una á þessum opin­beru gjöldum „óheppi­lega“, þar sem þetta ger­ist í „miðju stríði“ við að ná tökum á verð­bólgu og vænt­ingum. „Hættan er auð­vitað sú að þegar þetta ger­ist við þessar aðstæður þá smit­ist þetta út í aðrar verð­á­kvarð­anir og við erum að sjá það ger­ast.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár