Stýrivöxtum haldið óbreyttum eftir verðbólguskot

Vaxta­lækk­un­ar­ferli Seðla­bank­ans stöðvast eftir óvænta verð­bólgu vegna aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar.

Stýrivöxtum haldið óbreyttum eftir verðbólguskot
Ásgeir Jónsson Seðla­banka­stjóri von­að­ist til þess að verð­bólga hjaðn­aði fyrir vorið, en kippur varð í síð­ustu mæl­ingu. Mynd: Golli

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda stýri­vöxtum óbreyttum í 7,25%. Ástæðan fyrir því að vaxta­lækk­un­ar­ferli er sett í bið er hækkun verð­lags í jan­úar sem „megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjald­töku hins opin­bera af nýjum bif­reiðum“ og verð­hækk­anir „á til­tölu­lega breiðum grunni“.

Ákvörð­unin hefur tölu­verð áhrif á fjár­hag margra lands­manna. Þetta þýðir að óverð­tryggðir vextir á hús­næð­is­lánum, sem eru almennt yfir 8%, eru ólík­legir til að lækka á næst­unni. 

Um leið hækkar höf­uð­stóll verð­tryggðra fast­eigna­lána vegna verð­bólg­unnar á sama tíma og fast­eigna­verð lækkað síð­ustu tvo mán­uði.

Seðla­bank­inn segir að „und­ir­liggj­andi verð­bólgu­þrýst­ingur [sé] áfram þrá­látur þótt hægt hafi á efna­hags­um­svifum og skýr merki séu um kólnun á vinnu­mark­aði.“

Þannig hefur verð á mat og drykk hækkað um 5,8% á einu ári, sam­hliða vax­andi hagn­aði mat­vöru­keðja. 

Pen­inga­stefnu­nefnd spáir enn lækkun verð­bólgu framundan.

„Samkvæmt nýbirtri spá Seðla­bank­ans er spennan í þjóð­ar­bú­inu horfin, útlit fyrir til­tölu­lega hægan hag­vöxt og að verð­bólga hjaðni þegar líður á árið. Þrátt fyrir tíma­bundna aukn­ingu verð­bólgu í byrjun árs hafa verð­bólgu­horfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launa­hækk­anir enn tölu­verðar og verð­bólgu­vænt­ingar mæl­ast áfram yfir mark­miði,“ segir í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar.

Ástæðan fyrir því að vextir voru ekki lækk­aðir, eins og von­ast hafði verið til fyrir ára­mót, er að vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,38% í jan­úar ofan á 1,15% í des­em­ber, sem leiddi til þess að verð­bólgan náði 5,2%, því mesta frá sept­em­ber 2024. Orsök hækk­unar verð­bólg­unnar voru hækkun rík­is­stjórn­ar­innar á vöru­gjöldum inn­fluttra bif­reiða sam­hliða inn­leið­ingu kíló­metra­gjalds.

Eftir það spáði Lands­bank­inn spáði 0,25% hækkun stýri­vaxta.

Áður höfðu for­svars­menn Seðla­bank­ans spáð hraðri hjöðnun verð­bólg­unnar.

„Það er það sem ég býst við, að verð­bólga muni hjaðna hratt,“ sagði Þórarinn G. Pét­urs­son vara­seðla­banka­stjóri við kynn­ingu vaxta­á­kvörð­unar 19. nóv­em­ber, þar sem stýri­vextir voru lækk­aðir um 0,25%.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár