Vaxandi hætta á kreppuverðbólgu

Vaxandi líkur eru á að atvinnu­leysi og há verð­bólga fari saman og þá duga hefð­bundin tól efna­hags­stjórnar illa. Heims­hag­kerfið heldur áfram að ger­breyt­ast og aðlag­ast nýrri, síbreyti­legri en óljósri umgjörð. Þjóð­ar­auð­lindir nágranna okkar og jafn­vel okkar eigin gætu verið í hættu þegar ris­inn í vestri ásælist æ meiri auð­ævi á meðan umhverf­is­málin verða auka­at­riði.

Vaxandi hætta á kreppuverðbólgu

Erfitt er að hefja árið 2026 með bjart­sýnni fram­tíð­ar­sýn í ljósi sögu­legrar þró­unar síð­ast­lið­ins árs, þar sem atvinnu­leysi jókst veru­lega undir lok des­em­ber og verð­bólga hélst yfir fjórum pró­sentum. 

Þá varð æ skýr­ara að ógn um yfir­töku Græn­lands og nið­ur­brot Atl­ants­hafs­banda­lags­ins voru raun­veru­legar og eru enn að áger­ast. Þegar um þær hættur var fjallað í tveimur greinum hér í blað­inu fyrir ell­efu mán­uðum virk­aði það kannski fyrir marga sem fjar­stæðu­kennt og óraun­veru­legt blaður ein­hvers elli­ærs. Nú eru þær eitt helsta áhyggju­efni ráða­manna víða um Evrópu.

Hafi hin fjar­stæðu­kennda þróun heims­hag­kerf­is­ins síð­ast­liðna tólf mán­uði farið fram hjá les­endum þá ættu við­burðir síð­ustu helgar að draga skýrt fram raun­veru­lega birt­ing­ar­mynd þess að Banda­ríkja­for­seti er í alvöru aðgerðum til að sækja sér yfir­ráð auð­linda eins og þurfa þykir. Alþjóða­lög og samn­ingar skipta þar engu höf­uð­máli. Við­skipta­kerfi heims­ins er búið að aðlaga sig að banda­rískum vernd­ar­tollum á síð­asta ári sem eru komnir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár