Mynd: AFP

Vegsemd þess og vandi að vera fullvalda: Nálægðin við trumpíska landvinninga

Grænland er nær Banda­ríkj­unum en Danmörku land­fræði­lega. Bráðræði Donalds Trump og bráðnun Norður-Íshafs­ins birta okkur stöð­una í breyttum heimi. Mette Frederik­sen fékk að heyra það frá honum í sím­tali sem skekið hefur stjórn­kerfi Evrópu og Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.

Efna­hags­legir hags­munir og alþjóð­leg varn­ar­mál hafa sam­þæst mikið á und­an­förnum þremur árum. Við­skipta­þving­anir ann­ars vegar sem við­bragð við inn­rásum og tolla­stríð hins vegar sem við­bragð við auknum efna­hags­legum yfir­ráðum.

Heims­hag­kerfið er að ganga í gegnum mikið breyt­inga­skeið þar sem vægi aust­urs­ins eykst og vægi Vest­ur­landa minnkar hröðum skrefum. Nágranna­erjur og alþjóða­stjórn­mál sam­þætt­ast nú sem aldrei fyrr. Efna­hags­legar afleið­ingar breyttra yfir­ráða í kringum sigl­inga­leiðir gætu því orðið frétta­efni alþjóð­legra við­skipta­f­rétta á næst­unni.

Staða Íslands með til­liti til Græn­lands og afstöðu til Evr­ópu­sam­bands­ins gæti þurft að breyt­ast á álíka hraða og hvernig afstaða Finna og Svía til Nató umturn­að­ist við inn­rás Rúss­lands í Úkraínu. 

Vandi Grænlendinga og Íslendinga

Síðasta föstu­dag afhjúpaði Financial Times að Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, hefði þurft að sitja undir fyr­ir­lestri hins nýja og gamla for­seta Banda­ríkj­anna í þriggja kortera löngu sím­tali sem lýst var sem kaldri sturtu. Heim­ildir blaðs­ins komu úr fimm áttum hátt …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Is it in times of climate change, pandemics, demand for natural resources, etc. - interdependence - about sovereignty or about autonomy?
    0
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Bægslagangurinn í Trump og Musk, auk innanbúðarvanda Evrópu, þjónar BRICS vel.
    3
    • MS
      Michael Schulz skrifaði
      Isn't it rather that the BRICS are strong from the inside out and not from the outside in?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár