Hugur minn er bundinn við sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí og ég hlakka til að mynda nýjan meirihluta með flokkum sem eru tilbúnir að knýja fram róttækar breytingar. Það verður að vinda ofan af hugmyndafræði Samfylkingar og hinna vinstri flokkanna sem gengur út á að mæta ekki þörfum íbúa heldur breyta þörfum íbúa. Þessi stefna er gjaldþrota. Hugmyndafræði þeirra í skipulagsmálum er einnig gjaldþrota eins og við sjáum á stöðu á húsnæðismarkaði þar sem hundruð íbúða seljast ekki því verðið er of hátt og það eru of fá bílastæði. Hugmyndafræði þeirra í samgöngumálum er líka gjaldþrota en hún gengur út á að þrengja að þeim sem nota bíla í því skyni að koma Borgarlínu fyrir. Það er hins vegar vel hægt að koma á fót Borgarlínu og forgangsakreinum fyrir strætó án þess að þrengja að annarri umferð. Íbúar eru komnir með nóg og vilja bara góða þjónustu og að borgarstjórn einfaldi …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir