Atlantshafsbandalagið í sinni mestu krísu: Fjölþáttakrísa siðmenningarinnar

Atl­ants­hafs­banda­lagið Nató er í sinni mestu krísu frá upp­hafi og er við það að lið­ast í sundur. Banda­ríkin, stærsti og sterkasti aðili banda­lags­ins, virð­ast mögu­lega ætla að draga sig út úr varn­ar­sam­starf­inu. Þau ætla, að því er best verður séð, ekki lengur að sinna því hlut­verki að vera leið­togi hins vest­ræna eða frjálsa heims. Utan­rík­is­stefna þeirra sem nú birt­ist er ein­hvers konar blanda af henti­stefnu og nýrri nýlendu­stefnu með auð­linda-upp­töku. Fjöl­þáttakrísa (e. polycrisis) ræður ríkjum.

<span>Atlantshafsbandalagið í sinni mestu krísu: </span> Fjölþáttakrísa  siðmenningarinnar

Siðað sam­fé­lag krefst þess að hægt sé að eiga sam­skipti og við­skipti á reglu­bund­inn hátt. Það felur í sér að samn­ingar skuli halda en einnig að grund­vallar siða­við­mið séu virt. Öfgafull ein­stak­lings­hyggja grefur undan sið­uðum sam­fé­lögum, eða kemur í veg fyrir að þau geti byggst upp og nái að þró­ast. Hún virð­ist nú hafa tekið völdin í banda­rísku stjórn­kerfi og utan­rík­is­stefnu.

Samfélag okkar, sem bygg­ist upp á grunni við­skipta og alþjóða­tengsla, í stað sjálfs­þurft­ar­bú­skapar land­bún­aðar og útgerðar, krefst þess að grund­vall­ar­inn­viðir eins og rétt­ar­kerfi og laga­setn­ingar séu virt. Raunar eru dóm­stólar og virð­ing gagn­vart lögum grund­völlur þess að við­skipti og mark­aðir virki. En siðuð sam­skipti, rétt­ar­ríkið og alþjóða­lög eiga nú undir högg að sækja.

Sið­menn­ing er það hvernig við högum okkur á sið­aðan hátt í sam­fé­lagi, í fjöl­skyldu, meðal nágranna og milli þjóða. Menning er nokkuð stöðugt fyr­ir­bæri en þó einnig breyt­an­legt kerfi. Það er hópur en ekki …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár