Inga Sæland Mennta- og barna­mála­ráð­herra biðlar til atvinnu­lífs­ins að hækka ekki verð núna. Mynd: Golli

„Bara plís, ekki hækka vörurnar núna“

Inga Sæland sló upp­takt­inn að þjóð­ar­sátt með beiðni til atvinnu­lífs­ins.

Óttast er að vænt­ing­arnar einar og sér um að verð­bólga muni aukast muni valda breyttri hegðun hjá sölu­að­ilum og neyt­endum, sem láti verð­bólg­una verða að veru­leika.

Þetta er ein af ástæðum þess að Kristrún Frosta­dóttir og með­ráð­herrar hennar ákváðu að grípa til beinna aðgerða, þrátt fyrir fyrri yfir­lýs­ingar um annað, til þess að lækka verð á elds­neyti.

Með til­kynn­ingu um lækkun virð­is­auka­skatts úr 24% í lægra þrepið 11% yfir sum­ar­tím­ann, von­ast Kristrún til þess að „fletja kúf­inn“ eftir elds­neyt­is­verð­hækk­anir tengdar Írans­stríð­inu og „detta í annan takt“.

Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra, sendi skýr skila­boð til atvinnu­lífs­ins á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun: „Bara, plís, ekki vera að hækka vör­urnar núna,“ sagði hún. Verð á mat og drykk hefur hækkað um 5,8% síð­asta árið, þrátt fyrir að krónan hafi styrkst, en á sama tíma lýsa stjórn­endur mat­vöru­keðj­anna „með­byr í rekstri versl­ana“.

Bæði Kristrún Frosta­dóttir, Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra og Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri hafa rætt mögu­leika á nýrri þjóð­ar­sátt, sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, lagði til í við­tali við RÚV í lok mars, með til­vísun í sam­hentar aðgerðir gegn verð­bólgu árið 1990.

Hún vís­aði til þess að sumar versl­anir skuld­bundu sig árið 2024 til þess að forð­ast verð­hækk­anir. Verð­bólgan nú er 5,4%, eða það sama og í sept­em­ber 2024, og enn á eftir að hækka verð­lag vegna Írans­stríðs­ins.

„Það væri afskap­lega ánægju­legt ef atvinnu­lífið okkar tæki höndum saman við okkur, eins og við höfum vænt­ingar til, og til dæmis höfum við séð það á árum áður, eins og fyrir síð­ustu kjara­samn­inga, 2024, að stórar versl­anir eins og BYKO, Húsa­smiðjan, hétu því að hækka ekki verð hjá sér í sex mán­uði á meðan jafn­vel IKEA lækk­aði verð á upp undir sex þús­und vöru­flokkum, bara til þess að koma til móts við þær áskor­anir sem við vorum að mæta þá sem sam­fé­lag,“ sagði Inga.

„Við erum að vona að sá árangur sem af því varð, sem var greini­legur og allir sáu auð­vitað, að það sé góður hvati ásamt því að við viljum takast í hendur við atvinnu­lífið okkar að halda áfram á þeirri veg­ferð og taka hana upp að nýju og senda skila­boð út í þá sem eru að selja okkur neyslu­vör­una að bara, plís, ekki vera að hækka vör­urnar núna. Tökum höndum saman og reynum að ná valdi á ástand­inu vegna þess að það er hagur okkar allra,“ sagði hún og ítrek­aði: „Það er fram­tíðin okkar, alger­lega í hnot­skurn og ég treysti því að við getum í raun­inni, þegar upp er staðið, brosað björt hvað það varðar.“

Formaður banka­ráðs Seðla­bank­ans tók í svip­aðan streng í ræðu sinni við árs­fund bank­ans í gær. Þar spurði hann hvort við­skipta­vinir bank­anna og mat­vöru­keðj­anna hefðu fengið að njóta ávaxta rekstr­ar­sparn­aðar við sjálf­virkni­væð­ingu versl­ana og banka með því að vöru­verð og verð­skrár lækk­uðu. Bæði bankar og mat­vöru­keðjur hafa skilað met­hagn­aði síð­ustu miss­erin, mitt í mik­illi verð­bólgu.

Mikil óvissa er um þróun verð­bólg­unnar, en lík­legt er að hún auk­ist til skemmri og lengri tíma vegna Írans­stríðs­ins og afleiddra verð­hækk­ana á olíu, áburði og fleiru, sem smit­ast út í annað verð­lag á end­anum.

Greining Íslands­banka hefur spáð því til bráða­birgða að vísi­tala neyslu­verðs hækki um 0,4 pró­sentu­stig í apríl, 0,25 pró­sentu­stig í maí og 0,6 pró­sentu­stig í júní, sem sam­an­lagt veldur 1,25% hækkun á höf­uð­stól verð­tryggðra fast­eigna­lána á næstu þremur mán­uðum, en tveir þriðju hlutar lán­tak­enda eru með verð­tryggð lán. Þá sagði seðla­banka­stjóri í ræðu sinni í gær að hækka þyrfti stýri­vexti aftur, „að óbreyttu“, en næsti fundur pen­inga­stefnu­nefndar er 20. maí.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Atvinnulífið sem því miður lýtur að mestu vilja xD mafíunnar ennþá reynir að hækka allt sem þeir geta til að koma ríkisstjórninni í vanda. Þeir myndu kveikja í landinu ef þeir gætu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár