Ísland sker sig frá Evrópu með vöxtum og verðbólgu

Næstum tvö­falt hærri stýri­vextir eru á Íslandi en í Noregi, sem er með næst­hæstu vexti Norð­ur­landa.

Ísland sker sig frá Evrópu með vöxtum og verðbólgu
Þjóð­há­tíð Íslend­ingar búa við hærra vaxta­stig en þjóðir sem gengið hafa í mynt­banda­lag Evrópu. Mynd: Golli

Stýri­vextir á Íslandi og þar með vaxta­kjör almenn­ings og fyr­ir­tækja skera sig með afger­andi hætti frá nor­rænum ríkjum, en einnig Evrópu í heild. Leita þarf til Hvíta-Rúss­lands, eða Belarús, til þess að finna hærri stýri­vexti.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í morgun að halda stýri­vöxtum óbreyttum í 7,25%, vegna þess að verð­bólga tók aftur kipp í jan­úar. Með því er Ísland með fimmtu hæstu stýri­vexti Evr­ópu­landa og lang­hæstu stýri­vexti Norð­ur­land­anna. 

Aðeins Tyrkland, Rússland, Úkraína og Hvíta-Rússland eru með hærri vexti, en tvö þess­ara ríkja eru í stríði og hin tvö ein­ræð­is­ríki og blandað ein­ræði.

Hærri stýrivextir utan evrunnar

Af evr­ópskum lýð­ræð­is­ríkjum sem ekki eru í stríði koma Ung­verja­land og Rúmenía næst á eftir Íslandi, með 6,5% stýri­vexti. Bæði ríki eru í Evr­ópu­sam­band­inu en eru ekki með evr­una sem gjald­miðil.

Þar á eftir koma Serbía, sem ekki er heldur með evr­una, með 5,75% stýri­vexti, og Moldóva, sem liggur milli Rúmeníu og Úkraínu og glímir við rúss­neska aðskiln­að­ar­sinna, með 5% stýri­vexti.

Af Norð­ur­lönd­unum kemur Noregur, sem ekki hefur evr­una, næst á eftir Íslandi en er rétt ríf­lega hálf­drætt­ingur með 4% stýri­vexti. Pól­verjar, sem hafa haldið sér utan evr­unnar, eru með sömu stýri­vexti.

Á evru­svæð­inu eru stýri­vextir síðan 2,15%, eða 5,35 pró­sentu­stigum lægri en á Íslandi.

Mun meiri verðbólga en á Norðurlöndunum

Þegar litið er til verð­bólgu er nið­ur­staðan ekki ólík. Ríkin fimm með hærri stýri­vexti en Ísland eru með meiri verð­bólgu, en líka Rúmenía með 9,7% verð­bólgu og Moldóva með 6,8% verð­bólgu.

Verð­bólga í Noregi er 3,2%, en í Evr­ópu­sam­band­inu að með­al­tali 2,3%.

Í Færeyjum mælist aðeins 0,7% verð­bólga, í Finn­landi, 0,2%, Svíþjóð 0,3% og í Danmörku 1,9%, rétt eins og á evru­svæð­inu, en danska krónan er bein­tengd gengi evr­unnar.

Atvinnu­leysi er víða hvar meira í evru­ríkj­unum en á Íslandi. Að með­al­tali er það 5,9% í Evr­ópu­sam­band­inu, en hér á landi er það 4,2% og er spáð því að það vaxi í 4,7% á árinu sam­hliða kólnun efna­hags­lífs­ins, sem Seðla­bank­inn boð­aði á fundi pen­inga­stefnu­nefndar í morgun.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Aðeins Rússland, Úkraína og Belarús eru með hærri stýrivesti en Ísland!

    Smá ruglaður hverjar okkar fyrirmyndir í rekstri ríkisins eru og að hvaða þjónustustigi er stefnt hjá okkur íslendingum í ríkisrekstrinum.

    Hef alla tíð haldið norðurlöndin okkar fyrirmyndir en þessar tölur benda til annars.
    Án þess að vera beint fylgjandi Evrópusambandsins sýnist mér á þessum tölum að hagur þeirra sem eru innan Evrópusambandsins sé betri að þessu leiti en hinna sem ekki tengjast því og myntkerfi þess.
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þetta er ekkert mál. Þessir háu stýrivextir eru bara slæmir fyrir þá sem þurfa endilega að vera að því að taka lán. Hættum því bara og spörum fyrir því sem okkur vantar og ávöxtum í staðinn.
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Launakostnaður er berandi kostnaður í hagkerfinu. Launahækkanir langt umfram hagvöxt á mann ár eftir ár geta hvergi annars staðar endað en í verðlaginu.
    0
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Ísland er í góðum málum í ríkisfjármálum. Ríkissjóður er með um 60% skuld af vergri landsframleiðslu og þar af er um 82% af því í krónum (innlend skuldabréf og yfirdráttur hjá Seðlabankanum). Þýskaland er t.d. með skuldir upp á tæp 70% og Evrusvæðið 88% í vegnu meðaltali. Fæ ekki séð að það sé góð ástæða til að halda vöxtum svona háum eða að háir stýrivextir séu að virka á verðbólguna sem slíka. Verðbólgan er ekki vegna gjaldmiðilsins per se en er samt innflutt að stórum hluta. Krónan er frekar há í samanburði við Evru og Dollar. Skrítin staða sem erfitt er að meta rétt.
    1
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Langlundargeð Íslendinga gagnvart krónunni er aðdáunarvert.
    5
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það eru einhverjir sem hagnast á þessari peninga og verðbólgu þvælu.
    4
    • PG
      Palli Garðarsson skrifaði
      Það eru þeir hinir sömu og standa að baki heilaþvotti með hvað allt sé ömurlegt innan ESB og landið eigi að halda sig utan sambandsins.
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár