Verðbólgan tekur stórt stökk

Vísitala neyslu­verðs hækkar um meira en búist hafði verið við og verð­bólgan er komin í 5,2%.

Verðbólgan tekur stórt stökk

Verð­bólga er komin í hæsta gildi sitt frá sept­em­ber 2024 eftir nýj­ustu mæl­ingu, þar sem hún fer umfram spár. Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,38% í jan­úar einum og sér og er hækkun vísi­töl­unnar til síð­ustu 12 mán­aða, eða verð­bólga, komin í 5,2%.

Lands­bank­inn hafði spáð því að verð­bólga mæld­ist 5,1% í jan­úar og að vísi­talan myndi hækka um 0,3%. Íslands­banki hafði spáð 4,9% verð­bólgu.

Þetta þýðir að höf­uð­stóll verð­tryggðra fast­eigna­lána lands­manna mun hækka um 0,38% á einum mán­uði, að frá­dreg­inni afborgun sem er breyti­leg eftir lengd lána og stöðu. Lang­flest hús­næð­is­lán sem tekin hafa verið síð­ustu mán­uði eru verð­tryggð.

Aðrar slæmar fréttir fyrir hús­næð­is­eig­endur nú er að þróun fast­eigna­verðs er ekki að hækka vísi­tölu neyslu­verðs. Þvert á móti hefur fast­eigna­verð lækkað. Áhrifin birt­ast þó í gegnum „reikn­aða húsa­leigu“. Vísitala neyslu­verðs án hús­næðis hækkar um það sama og vísi­talan almennt.

Ein helsta ástæðan fyrir hækkun vísi­töl­unnar eru gjald­skrár- og skatta­breyt­ingar rík­is­ins.

„Um ára­mótin voru gerðar ýmsar breyt­ingar á gjöldum tengdum öku­tækjum sem höfðu áhrif á vísi­tölu neyslu­verðs. Olíu­gjald og vöru­gjöld á elds­neyti voru lögð niður og kolefn­is­gjaldið var hækkað. Tekin voru upp kíló­metra­gjöld fyrir öll öku­tæki, vöru­gjöldum á öku­tæki var breytt og raf­bíla­styrk­ur­inn var lækk­aður,“ segir í til­kynn­ingu Hag­stof­unnar.

Hækkun vísi­töl­unnar kemur þrátt fyrir útsölu­á­hrif, þar sem verð á fötum og skóm lækk­aði um 7,4% og hús­bún­aði um 5,4%. Þá lækk­uðu flug­far­gjöld um 10,8%.

Verð­bólgu­töl­urnar nú eru lík­legar til að fresta stýri­vaxta­lækk­unum Seðla­banka Íslands. Næsta vaxta­á­kvörðun er á mið­viku­dag, 4. febr­úar.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Benda má á að mánaðarbreiting upp á 0,38%, sem kemur fram í töflunni í greininni, gefur ársverðbólgu upp á 4,6% (0,38x12) en ekki 5,2%. Það er að segja verðbólgan í dag er 4,6% en er hinsvegar búin að vera að meðaltali 5,2% seinustu 12 mánuði. Það er í raun í hæsta máta undarlegt að stjórnvöld skuli nota margra mánaða gamlar tölur til að reikna út verðbólguna í dag.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár