Hannes Hólmsteinn kveðst loks orðinn ósammála Trump

Stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn seg­ist ekki hald­inn trump­truflun, en að hann telji of langt gengið í Græn­lands­mál­inu.

Hannes Hólmsteinn kveðst loks orðinn ósammála Trump
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Stjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn var lengi einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sjálf­stæðís­flokks­ins. Hann hefur verið sam­mála Banda­ríkja­for­seta í mörgu, þar til nú. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræð­ingur greinir frá því í kvöld að hann sé loks orð­inn ósam­mála Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, þegar kemur að yfir­töku Græn­lands. Hann segir þó að margir séu haldnir Trump­trufl­un­ar­heil­kenni.

Hannes var lengi vel einn helsti hug­mynda­fræð­ingur íslenskra stjórn­mála, sem náinn banda­maður Davíðs Odds­sonar, áður for­sæt­is­ráð­herra og nú rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Talaði Hannes fyrir harðri frjáls­hyggju, en eftir efna­hags­hrunið var hann meðal ann­ars feng­inn af þáver­andi for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að vinna skýrslu, fjár­magn­aða af íslenska rík­inu, um erlendar orsakir hruns­ins.

„Ég hef verið hlynntur mörgu, sem Trump gerir,“ segir Hannes Hólm­steinn á Facebook í kvöld.

„Evr­ópu­ríkin eiga að greiða sjálf fyrir varnir sínar. Rétt er að lækka skatta og fækka reglu­gerðum. Kenn­ingin um ham­fara­hlýnun er studd hæpnum rökum, enda hljóta lofts­lags­breyt­ingar að vera að miklu leyti nátt­úr­unnar verk, og því rétt að laga sig að þeim og virkja nýj­ustu tækni til þess. Karlar eiga ekki að keppa í kvenna­í­þróttum. Landa­mæri geta ekki verið galopin fyrir þá, sem koma í þeim til­gangi einum að kom­ast á bætur,“ segir hann.

Þá kvartar hann undan hug­mynda­fræði­legum áherslum í háskólum í fjöl­miðlum. „Öfga­vinstri­menn hafa hreiðrað um sig í háskólum og á fjöl­miðlum og mis­nota aðstöðu sína,“ segir hann og lýsir stuðn­ingi við mál­stað Ísraels, þrátt fyrir að alþjóða­stofn­anir hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Ísrael stundi þjóð­ar­morð. Einnig styður hann ýmsar hern­að­ar­að­gerðir Trumps.

„Rétt er að styðja af alefli eina vest­ræna lýð­ræð­is­ríkið í Mið­aust­ur­löndum, Ísrael. Það var þjóð­þrifa­verk að sprengja í tætlur kjarn­orku­búnað erkiklerk­anna í Íran og sækja Maduro til Venes­ú­ela, og sýndi hvort tveggja undra­verða tækni­lega getu Banda­ríkja­hers. Margt fleira má telja.“

Hannes tekur fram að þrátt fyrir að hann sé nú ósam­mála Trump í því máli sem við­kemur yfir­töku hans á Græn­landi, seg­ist hann ekki hald­inn trump­truflun.

„Ég hef ekki talið mig hald­inn Trump-heil­kenn­inu, Trump Der­angement Syndrome, en sé það ljós­lif­andi á sumum vinum mínum, sem geta ekki við­ur­kennt neitt rétt eða eðli­legt frá Trump. En í Græn­lands­mál­inu hefur Trump farið langt fram úr sjálfum sér. Þessi færsla hans er með ólík­indum.“

Hannes bendir þar á færslu Banda­ríkja­for­seta þar sem hann hótar refsi­tollum upp á 10% og svo 25% gegn þeim þjóð­ríkjum sem standa gegn yfir­töku hans á Græn­landi.

Hótun TrumpBanda­ríkja­for­seti hótar Evr­ópu­þjóðum refsi­að­gerðum fall­ist þær ekki á yfir­töku hans á Græn­landi.
Kjósa
-4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PJ
    Pétur Jósafatsson skrifaði
    Hvenær í veröldinni var Hannes "einn helsti hugmyndafræðingur íslenskra stjórnmála" ????
    3
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      "... Sjálfstæðisflokksins" stendur undir myndinni og má það vel vera.
      0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Þið vitið að Davíð kom þessari persónu á laun hjá okkur hinum án vinnuframlags fyrir okkur, en bara fyrir Davíð og flokkinn ! Trump og Hannes hvvað !
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár