Spennan við gervigreindar-tónlist snýst upp í andhverfu sína

Tón­list­ar­mað­ur­inn Svein­björn Thoraren­sen segir traustið á milli tón­list­ar­manns­ins og hlust­and­ans rofna með til­komu tón­listar sem alfarið er gerð af gervi­greind. Spotify dreifir henni og Svein­björn segir ástæð­una þá sömu og lengi hefur þekkst í brans­anum: „Til þess að þurfa ekki að borga tón­list­ar­fólki.“

Spennan við gervigreindar-tónlist snýst upp í andhverfu sína
Svein­björn Thoraren­sen Tón­list­ar­mað­ur­inn Hermi­gervill sér fyrir sér að hægt verði að þykj­ast spila live á tón­leikum án þess að kunna að syngja eða spila á hljóð­færi. Mynd: Víkingur Óli Magnússon

Er tón­listin sem ég hlusta á búin til af alvöru tón­list­ar­manni eða ekki? Þetta er spurn­ing sem æ fleiri spyrja sig þessa dag­ana með til­komu for­rita eins og Suno sem geta búið til lög með aðstoð spuna­greindar. Ekki þarf nema að tikka í nokkur box og for­ritið skilar lagi sem hlust­and­inn gæti vel haldið að hafi verið sungið og spilað af mennskri hljóm­sveit í hljóð­veri. Textann má skrifa sjálfur eða láta ChatGPT sjá um það líka eins og svo margt annað.

Fyrir vikið hafa stokkið fram á sjón­ar­sviðið „tón­list­ar­menn“ sem ekk­ert hafa lært um tón­list. Einn þeirra, Oliver McCann, gerði nýverið plötu­samn­ing eftir að lag sem hann lét gervi­greind búa til frá grunni fékk 3 millj­ónir spil­ana. „Ég hef enga tón­list­ar­hæfi­leika,“ sagði hann við AP-frétta­stof­una. „Ég kann ekki að syngja, ég kann ekki að spila á hljóð­færi og ég hef …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár