Áhyggjur eða þráhyggja um gervigreind? „Stefnum óðfluga út í óvissuna“

Leið­togar heims­ins, án leið­toga Banda­ríkj­anna, leita leiða til að koma mann­lega þætt­inum inn í stjórn gervi­greind­ar­þró­unar. Banda­ríkin vara við „þrá­hyggju“ um lofts­lags­mál og jöfnuð.

Áhyggjur eða þráhyggja um gervigreind? „Stefnum óðfluga út í óvissuna“
Taka höndum saman Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, Luiz Inacio Lula da Silva, for­seti Brasilíu, og Emmanuel Macron , for­seti Frakk­lands, stilla sér upp með öðrum þjóð­ar­leið­togum og full­trúum fyrir hóp­mynda­töku á AI Impact Summit í Nýju Delí í gær. Mynd: AFP

Nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um gervi­greind mun vinna að „vís­inda­lega grund­vall­aðri stjórn­sýslu“, sagði yfir­maður alþjóða­stofn­un­ar­innar í dag þegar leið­togar á leið­toga­fundi í Nýju Delí íhug­uðu boð­skap sinn um fram­tíð þess­arar ört vax­andi tækni.

Sendi­nefnd Banda­ríkj­anna hafn­aði hins vegar „alger­lega“ mið­stýrðri stjórn á sviði skap­andi gervi­greindar og benti á erf­ið­leik­ana við að ná sam­stöðu um hvernig ætti að með­höndla hana.

Hin hliðin á gullæð­inu í kringum gervi­greind er fjöldi vanda­mála, allt frá raski á vinnu­mark­aði til fals­upp­lýs­inga, auk­ins eft­ir­lits, netof­beldis og mik­illar raf­magns­notk­unar gagna­vera, fyrir utan sjálf­stýrðan hernað.

Vilja miðstýrða staðreyndaöflun

„Við stefnum óðfluga út í óviss­una,“ sagði Antonio Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, á AI Impact Summit í Nýju Delí. „Skila­boðin eru ein­föld: minna fár, minni ótti. Fleiri stað­reyndir og sönn­un­ar­gögn.“

Til að ljúka fimm daga leið­toga­fund­inum er búist við að tugir þjóð­ar­leið­toga og ráð­herra komi með sam­eig­in­lega sýn í dag um kosti gervi­greindar, svo sem …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt mannkyn lifir samkvæmt arðránskerfi að einhverju tagi, gervigreindin er eingöngu hönnuð til þess að viðhalda því.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár