Óður til líkamlegrar skynjunar

Hvað verður um lík­amann þegar hug manns er hlaðið upp í gervi­greind­ar­skýið? Þetta er við­fangs­efnið í dans­verk­inu Sér­stæðan eftir Rósu Ómars­dóttur þar sem áhorf­endum er boðið að nýta lík­am­leg skyn­færi sín áður en þau verða gervi­greind­inni að bráð.

Óður til líkamlegrar skynjunar

Dans­ar­inn Inga Huld Hákon­ar­dóttir hleður sjálfri sér upp í gervi­greind­ar­veru­leika og hverfur af svið­inu í dans­verk­inu Sér­stæðan sem Rósa Ómars­dóttir semur. Verkið var frum­sýnt á Reykja­vík Dance Festival fyrir jól en verður nú sýnt aftur dag­ana 18. og 19. febr­úar í Tjarn­ar­bíói.

Rósa seg­ist hafa byrjað að skrifa verkið árið 2018, löngu áður en spuna­greind eins og ChatGPT varð hluti af dag­legu lífi margra Íslend­inga. „Svo tók ég upp þráð­inn og þá var ChatGPT að koma á fullu,“ segir hún. „Ég er búin að vera að pæla í þessu lengi, sér­stak­lega því ég er í dansi og vinn mikið með lík­amann minn.“

Rósa Ómars­dóttirDans­höf­undur seg­ist aldrei nota gervi­greind í list­sköpun sinni en tengsl lík­am­ans og gervi­greindar eru við­fangs­efnið í nýju verki hennar.

Titill sýn­ing­ar­innar, Sér­stæðan, er íslenska orðið yfir það sem á ensku er kallað „singula­rity“ …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár