Fólk með vanlíðan hverfur í kanínuholur gervigreindar

Pétur Maack Þor­steins­son, for­maður Sál­fræð­inga­fé­lags Íslands, varar við notkun gervi­greindar í stað sál­fræð­ings. Hún sé hönnuð til að halda fólki á spjalli og hafi ekki þjálfun heil­brigð­is­starfs­manns. Óljóst sé hvar leita eigi réttar síns og spurn­ingum um trúnað og aðstoð í neyð er ósvarað.

Fólk með vanlíðan hverfur í kanínuholur gervigreindar
Pétur Maack Þor­steins­son Formaður Sál­fræð­inga­fé­lags­ins segir gervi­greind ekki þekkja rauð flögg og því ekki vísa fólki til þar til bærra með­ferð­ar­að­ila.

For­eldrar 16 ára drengs í Banda­ríkj­unum sem svipti sig lífi hafa kært fyr­ir­tækið OpenAI, sem rekur spuna­greind­ar­for­ritið ChatGPT, fyrir að hafa stutt hann í fyr­ir­ætlan sinni. Málið hefur vakið spurn­ingar um hvort spjall­for­rit af þessu tagi geti leitt fólk sem upp­lifir van­líðan eða ein­mana­leika í ógöngur.

Samkvæmt kæru for­eldr­anna ráð­lagði ChatGPT drengnum um hvernig best væri að stytta sér aldur, bauðst til þess að skrifa fyrir hann fyrstu drög að sjálfs­morðs­bréfi og var­aði hann við að láta aðra vita af því sem hann hugð­ist gera.

Pétur Maack Þor­steins­son, for­maður Sál­fræð­inga­fé­lags Íslands, segir gervi­greind sem slíka ekki vera slæma og lík­lega fæsta sál­fræð­inga hafa þá skoðun. „En hún hefur ekki inn­byggða dóm­greind, hún er ekki þjálfuð eins og heil­brigð­is­starfs­maður og þar af leið­andi má fólk fyrst og fremst gæta sín að hafa ekki þær vænt­ingar,“ segir hann.

„Stóru mál­lík­önin, sem við köllum gervi­greind, virka þannig að það eru kennslu­gögn fóðruð í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár