„Bardaginn er núna um mannshugann“

Bók­menntir skrif­aðar af gervi­greind telj­ast ekki til listar því í þær vantar til­finn­ingar höf­und­ar­ins að mati Berg­sveins Birg­is­sonar rit­höf­undar. Hann líkir list­inni við skák, sem tölvur eru orðnar miklu betri í en mann­fólk, en samt heldur fólk áfram að tefla.

„Bardaginn er núna um mannshugann“
Berg­sveinn Birg­is­son Rit­höf­und­ur­inn ótt­ast frekar um mót­tak­anda list­ar­innar en lista­mann­inn sjálfan, nú á tímum gervi­greindar. Mynd: Víkingur

Íslend­ingar hafa lengi kallað sig bók­mennta­þjóð og landið sjálft sögu­eyju. Talað er um að sagna­arf­ur­inn frá fyrstu land­nemunum hafi borist til nýrra kyn­slóða sem skálda sínar bók­menntir í sam­ræmi við íslenska arf­leifð.

Með til­komu spuna­greindar (e. gener­ative artificial intelligence) á borð við ChatGPT nýt­ist öll bók­mennta­sagan við að spinna nýtt efni. Þannig not­aði til dæmis Banda­ríkja­mað­ur­inn Tim Boucher spuna­greind strax árið 2023 til að „skrifa“ hund­ruð mynd­skreyttra bóka, selja þær og græða á þeim. Hann sagði Newsweek að hann hefði fengið þús­undir doll­ara fyrir bæk­urnar sem tók hann jafn­vel aðeins þrjá klukku­tíma hverja að skrifa. Spuna­greindin væri þannig gott tól til að koma ímynd­un­ar­afli sínu í far­veg.

En eru verk búin til af spuna­greind list? Þessi umræða hefur und­an­farin ár átt sér stað innan allra list­greina, allt frá tón­list og mynd­list til kvik­mynda og bók­mennta.

Berg­sveinn Birg­is­son, höf­undur ljóða­bóka og skáld­sagna, meðal ann­ars Svars við bréfi Helgu, …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár